
Kristín Þorsteinsdóttir

Hræddir um sérhagsmuni
Raunveruleg samkeppni er engin.

Vítahringur einkabílsins
Þau tíðindi bárust í vikunni að samhugur væri meðal allra sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins um nýtt svæðisskipulag. Hryggjarstykki skipulagsins væri afkastamikið samgöngukerfi, svokölluð Borgarlína, sem tengja myndi kjarna sveitarfélaganna við allt höfuðborgarsvæðið.

Aumur fjölmiðill sem ekki gagnrýnir
Forsætisráðherra ritaði grein sem birtist í Fréttablaðinu í vikunni. Í greininni birtist kunnuglegt stef – þessi furðulega blanda af samsæriskenningasmíð og viðkvæmni sem ráðherranum er svo töm.

Steyptir í sama mót
Reimar Pétursson, formaður Lögmannafélags Íslands, telur óæskilegt að nýútskrifaðir lögmenn starfræki eigin lögmannsstofur. Í nýlegu viðtali veltir Reimar fyrir sér hvort ekki sé æskilegt að gera kröfu um starfsreynslu áður en lögmenn hefja sjálfstæða starfsemi.

Lokum ekki landamærunum
Athyglisverð er sú skoðun sem birtist í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 í vikunni að mikill meirihluti Íslendinga vilji að bankarnir verði seldir Íslendingum.

Þær ættu að njóta eldanna
Þennan dag fyrir 100 árum, stóðu konur með vonarglampa í augum og framtíðarsýn um jöfnuð.

Hleypidómar gagnvart námsvali
Forsvarsmenn yfirstandandi kjaraviðræðna hafa lagt ríka áherslu á virði menntunar. Háværar raddir háskólagenginna stétta segja laun sín í ósamræmi við menntun og hafa nýdoktorar nú tekið í sama streng. Öll krefjast þau launa til samræmis við menntun.

Vegið að fjölmiðlafrelsi
Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi í vikunni íslenska ríkið bótaskylt gagnvart blaðakonunni Erlu Hlynsdóttur. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að með dómi Hæstaréttar frá 2010, í meiðyrðamáli gegn Erlu, hefði íslenska ríkið brotið gegn tjáningarfrelsisákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.


Gífuryrði um geggjað fólk
Harkaleg viðbrögð yfirvalda í Feneyjum vegna framlags Íslands til Feneyjatvíæringsins sæta furðu. Verk svissneska listamannsins Cristophs Buchel, moskan í kirkjunni, virkar sárasaklaust úr fjarlægð.

Land tukthúsanna
Hvergi í heiminum sitja fleiri í fangelsi hlutfallslega en í Bandaríkjunum. Allt að 25% refsifanga í fangelsum heimsins eru Bandaríkjamenn.

Aðrir leiðtogar víkja
Fyrirfram var búist við flókinni stöðu að loknum þingkosningum í Bretlandi: Íhaldsmenn og Verkamannaflokkurinn yrðu jafnir og annar flokkurinn þyrfti að reiða sig á stuðning smærri flokka til að koma á starfhæfri ríkisstjórn.

Þjóðin vill en þingið ekki
Ef að líkum lætur munu forsetakosningar á næsta ári snúast um málskotsréttinn. Við þurfum greiða leið til að brúa gjár sem myndast milli þings og þjóðar. Sú leið má ekki ráðast af duttlungum.

Píratar á siglingu
Fylgið streymir til Pírata.

Afskekktasta listasafnið
Líklega fjölgar ferðamönnum til Íslands hvað sem líður náttúrupassa og innviðum samfélagsins til að mæta fjölguninni. Ísland er komið á kortið.

Barack og Hillary
Síðast þegar demókratar völdu forsetaefni var mörgu frjálslyndu flokksfólki vandi á höndum.

Engin huggun að vera skást
Lægri verðmiði á vinnuframlagi kvenna.

Dagblað segir fréttir
Fréttablaðið hefur undanfarnar vikur sagt fréttir af dómsmálum sem rót eiga að rekja til bankahrunsins.

Satt eða ósatt?
Sérkennileg staða í dómsmáli.

Kjarkmikill utanríkisráðherra
Staða mála í Austurlöndum nær er snúin. Stundum virðist ómögulegt að henda reiður á þeim grimmdarlega veruleika sem þjóðir í þessum heimshluta búa við. Stöku sinnum birtast þó fréttir, sem vekja vonir um að þeir ógeðfelldu hagsmunir sem oft virðast ráða ferð, séu látnir víkja fyrir heilbrigðri skynsemi.

Eva Joly og afkvæmið
Nú eru bráðum fjögur ár síðan Eva Joly kom til Íslands til að gefa stjórnvöldum ráð um hvernig ganga skyldi milli bols og höfuðs á meintum fjárglæframönnum eftir bankahrun. Strax kom hún galvösk, með bros á vör í viðtal í sjónvarpi og lýsti yfir sekt manna á báða bóga, meira að segja í einstöku dómsmáli.

Má gera okkur öllum upp skoðanir?
Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í heiminum, sagði Willem Buiter, hagfræðingur á hagfræðingaráðstefnunni í Hörpu í haust. Ég held að hann hafi hitt naglann á höfuðið. Fyrir vikið nær hæfileikafólk oft ótrúlegum tökum á íslensku umhverfi. Það fær svo litla samkeppni.

Erum við verri en annað fólk?
Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófum dráttum er stóri lærdómurinn af því sá að fólk er nokkurn veginn eins hvar sem það elur manninn. Aðstæðurnar eru að vísu ólíkar en ég held að hlutfallið af alls kyns frávikum sé álíka. Þess vegna er erfitt að trúa því að fólk með

Dilkadráttur Vilhjálms
Vilhjálmur Bjarnason skrifar grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann fjallar um persónuleg mál mín. Vilhjálmur er á sinn sérstaka hátt að bregðast við sjónarmiðum sem ég setti fram í Fréttablaðsgrein í vikunni.

Rúv heillum horfið
Enn á ný ryðst slitastjórn Glitnis fram í fjölmiðla með nýja stefnu. Nú fyrir íslenskum dómstólum. Sama slitastjórnin sem fyrir nokkrum misserum treysti ekki þeim íslensku og leitaði því á náðir bandarískra dómstóla. Og enn tromma íslenskir fjölmiðlar undir.