Kvaddi Eiður Smári alveg eins og pabbi sinn? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2016 09:00 Eiður Smári Guðjohnsen og Lars Lagerbäck eftir leikinn. Visir/Anton
Eiður Smári Guðjohnsen lék í gær mögulega sinn síðasta A-landsleik á Laugardalsvellinum þegar Ísland vann 4-0 sigur á Liechtenstein og það er við hæfi að rifja upp síðasta A-landsleik föður hans því þeir eiga ýmislegt sameiginlegt. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði eitt marka Íslands í 4-0 sigri á Liechtenstein og faðir hans Arnór Guðjohnsen skoraði eitt marka Íslands í 4-0 sigri á Liechtenstein í síðasta A-landsleik sínum í október árið 1997. Leikurinn í gærkvöldi var vináttulandsleikur og síðasta leikur Íslands fyrir Evrópumótið í Frakklandi. Síðasti leikur Arnórs var í lokaleikur Íslands í undankeppni Heimsmeistarakeppninnar sem fór fram í Frakklandi sumarið á eftir. Arnór Guðjohnsen var fyrirliði íslenska liðsins og var inná vellinum þar til að hann fékk heiðursskiptingu á 79. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen kom aftur á móti inná sem varamaður í hálfleik Arnór Guðjohnsen skoraði reyndar þriðja mark leiksins á 66. mínútu en Eiður Smári Guðjohnsen skoraði aftur á móti fjórða mark leiksins á 82. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen var þarna að spila sinn 44. Landsleik á Laugardalsvellinum og var jafnframt að skora sitt sextánda mark á þjóðarleikvanginum. Arnór Guðjohnsen lék á sínum tíma 35 landsleiki á Laugardalsvellinum og skoraði í þeim 11 mörk þar á meðal fernu á stórsigri á Tyrkjum sumarið 1991. Eiður Smári Guðjohnsen mun þó ekki spila síðasta leikinn sinn á Laugardalsvellinum því hann mun vonandi getað hjálpað íslenska liðinu að ná góðum árangri á Evrópumótinu í Frakklandi. Hér fyrir neðan má sjá úrklippur úr DV og Morgunblaðinu frá því þegar Arnór kvaddi íslenska A-landsliðið fyrir að verða 19 árum síðan.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Fleiri fréttir Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Vinicius hetjan eftir rautt spjald og líflegan grannaslag Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Sjá meira