Fréttir Frjálst að reka Jóhann úr landsliðinu vegna kynferðisbrots og hótana Ákvörðun Landsambands hestamannafélaga um að víkja Jóhanni Rúnari Skúlasyni knapa úr landsliði Íslands í hestaíþróttum stendur. Hann á aftur á móti skýlausan rétt á að vita hve lengi eigi að útiloka hann frá landsliðinu. Innlent 20.2.2024 11:36 Hádegisfréttir Bylgjunnar Boðað hefur verið til fundar hjá breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í fyrramálið. Innlent 20.2.2024 11:35 Aftur að borðinu eftir viðræðuslit Boðað hefur verið til fundar hjá breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í fyrramálið. Innlent 20.2.2024 11:10 Vilja breiðfylkingu um flug til Húsavíkur Forsvarsmenn Framsýnar stéttarfélags Þingeyinga segja að komi ekki til kraftaverks verði áætlunarflugi Flugfélagsins Ernis frá Reykjavík til Húsavíkur hætt um næstu mánaðarmót. Stéttarfélagið kallar eftir tafarlausum viðbrögðum stjórnvalda. Innlent 20.2.2024 10:51 Dani hafi grætt milljónir á streymissvindli Réttað verður yfir 53 ára gömlum dönskum karlmanni í Árósum í dag en honum er gefið að sök að hafa stolið 689 lögum eða hluta úr lögum og dreift þeim undir eigin nafni á streymisveitum líkt og Spotify og Apple Music. Erlent 20.2.2024 09:04 Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. Erlent 20.2.2024 09:03 Reið íslenskum stjórnvöldum að setja sjálfboðaliða í þessa stöðu Einn nokkurra sjálfboðaliða, sem hefur dvalið í Kaíró undanfarið og aðstoðað Palestínumenn út af Gasa, segir hræðilegt að þurfa að velja hverjum skuli bjarga fyrst. hHún segist reið íslenskum stjórnvöldum að hafa ekki ráðist í verkið fyrr og þar með lagt það í hendur sjálfboðaliða. Innlent 20.2.2024 09:01 Fagna nýju frumvarpi um Þjóðaróperu Fagfélag klassískra söngvara á Íslandi, Klassís, fagnar þeim merka áfanga í sögu sönglistar á Íslandi að fram sé komið frumvarp um Þjóðaróperu. Félagið lýsir eindregnum stuðningi við áform Lilju D. Alfreðsdóttur, viðskipta- og menningarráðherra, í frumvarpinu. Innlent 20.2.2024 08:34 Greiddi ekki flug og gistingu eiginkonu sinnar Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar láðist að greiða fyrir ferðalag eiginkonu sinnar Birgittu Kristersson í júlí í fyrra þegar hún ferðaðist með honum til Bandaríkjanna og síðar til Finnlands. Það var ekki gert fyrr en sænskir miðlar spurðust fyrir um málið. Erlent 20.2.2024 08:04 Styrktartónleikar til að koma fjölskyldunni frá Gasa: „Ég hélt að þetta væri ógjörningur“ „Ég hélt í raun að þetta væri ógjörningur,“ segir tónlistarmaðurinn Alexander Jarl um áform sín um að koma fjölskyldumeðlimum, sem staddir eru á stríðshrjáðu Gasa-svæðinu, til bjargar. Styrktartónleikar fyrir verkefninu fara fram næsta laugardag í Iðnó. Innlent 20.2.2024 08:01 Læknar mótmæla fjölgun lækna þrátt fyrir læknaskort Aðgerðum hefur verið frestar og sjúkrahús hafa neyðst til að vísa sjúklingum annað eftir að 6.500 unglæknar sögðu upp störfum á heilbrigðisstofnunum í Suður-Kóreu. Af þeim mættu 1.600 ekki til vinnu í gær. Erlent 20.2.2024 07:47 Leki kominn að flutningaskipi í Adenflóa Erlent 20.2.2024 07:35
267 268 269 270 271 272 273 274 275 … 334 ›
Frjálst að reka Jóhann úr landsliðinu vegna kynferðisbrots og hótana Ákvörðun Landsambands hestamannafélaga um að víkja Jóhanni Rúnari Skúlasyni knapa úr landsliði Íslands í hestaíþróttum stendur. Hann á aftur á móti skýlausan rétt á að vita hve lengi eigi að útiloka hann frá landsliðinu. Innlent 20.2.2024 11:36
Hádegisfréttir Bylgjunnar Boðað hefur verið til fundar hjá breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í fyrramálið. Innlent 20.2.2024 11:35
Aftur að borðinu eftir viðræðuslit Boðað hefur verið til fundar hjá breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í fyrramálið. Innlent 20.2.2024 11:10
Vilja breiðfylkingu um flug til Húsavíkur Forsvarsmenn Framsýnar stéttarfélags Þingeyinga segja að komi ekki til kraftaverks verði áætlunarflugi Flugfélagsins Ernis frá Reykjavík til Húsavíkur hætt um næstu mánaðarmót. Stéttarfélagið kallar eftir tafarlausum viðbrögðum stjórnvalda. Innlent 20.2.2024 10:51
Dani hafi grætt milljónir á streymissvindli Réttað verður yfir 53 ára gömlum dönskum karlmanni í Árósum í dag en honum er gefið að sök að hafa stolið 689 lögum eða hluta úr lögum og dreift þeim undir eigin nafni á streymisveitum líkt og Spotify og Apple Music. Erlent 20.2.2024 09:04
Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. Erlent 20.2.2024 09:03
Reið íslenskum stjórnvöldum að setja sjálfboðaliða í þessa stöðu Einn nokkurra sjálfboðaliða, sem hefur dvalið í Kaíró undanfarið og aðstoðað Palestínumenn út af Gasa, segir hræðilegt að þurfa að velja hverjum skuli bjarga fyrst. hHún segist reið íslenskum stjórnvöldum að hafa ekki ráðist í verkið fyrr og þar með lagt það í hendur sjálfboðaliða. Innlent 20.2.2024 09:01
Fagna nýju frumvarpi um Þjóðaróperu Fagfélag klassískra söngvara á Íslandi, Klassís, fagnar þeim merka áfanga í sögu sönglistar á Íslandi að fram sé komið frumvarp um Þjóðaróperu. Félagið lýsir eindregnum stuðningi við áform Lilju D. Alfreðsdóttur, viðskipta- og menningarráðherra, í frumvarpinu. Innlent 20.2.2024 08:34
Greiddi ekki flug og gistingu eiginkonu sinnar Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar láðist að greiða fyrir ferðalag eiginkonu sinnar Birgittu Kristersson í júlí í fyrra þegar hún ferðaðist með honum til Bandaríkjanna og síðar til Finnlands. Það var ekki gert fyrr en sænskir miðlar spurðust fyrir um málið. Erlent 20.2.2024 08:04
Styrktartónleikar til að koma fjölskyldunni frá Gasa: „Ég hélt að þetta væri ógjörningur“ „Ég hélt í raun að þetta væri ógjörningur,“ segir tónlistarmaðurinn Alexander Jarl um áform sín um að koma fjölskyldumeðlimum, sem staddir eru á stríðshrjáðu Gasa-svæðinu, til bjargar. Styrktartónleikar fyrir verkefninu fara fram næsta laugardag í Iðnó. Innlent 20.2.2024 08:01
Læknar mótmæla fjölgun lækna þrátt fyrir læknaskort Aðgerðum hefur verið frestar og sjúkrahús hafa neyðst til að vísa sjúklingum annað eftir að 6.500 unglæknar sögðu upp störfum á heilbrigðisstofnunum í Suður-Kóreu. Af þeim mættu 1.600 ekki til vinnu í gær. Erlent 20.2.2024 07:47
Næsta lægð nálgast landið Næsta lægð nálgast landið í kvöld og nótt. Þá hvessir af austri með úrkomu, fyrst syðst á landinu. Í dag verður hinsvegar fremur hæg sunnanátt með skúrum og eða éljum en það léttir til á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 0 til 4 stig. Innlent 20.2.2024 07:20
Hvíta húsið reiðubúið til að sjá Úkraínu fyrir langdrægum vopnum Joe Biden Bandaríkjaforseti er sagður reiðubúinn til að senda Úkraínumönnum langdrægar eldflaugar ef þingið samþykkir aukna fjárhagsaðstoð til handa Úkraínu. Erlent 20.2.2024 07:16
„Ég skil að fólki sé misboðið“ Sú var tíðin að dæmdir kynferðisbrotamenn áttu auðsótta leið að uppreist æru hjá forseta Íslands. Á uppreisnarárinu 2017 ofbauð landsmönnum þessi möguleiki og áður en árið var úti hafði lögunum verið breytt. Ríkisstjórnin var sömuleiðis sprungin eftir að í ljós kom að faðir forsætisráðherra hafði mælt með uppreist æru fyrir mann sem braut kynferðislega á stjúpdóttur sinni yfir tólf ára tímabil. Innlent 20.2.2024 07:01
Breytingar á útlendingalögum afgreiddar á bak við tjöldin? Til stendur að kynna nýtt frumvarp um breytingar á útlendingalögum nú í vikunni en ágreiningur er sagður uppi milli stjórnarflokkanna um nákvæma dagsetningu. Innlent 20.2.2024 06:46
Innbrot, þjófnaðir og vesen í bílastæðahúsi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú innbrot og þjófnað á heimili í Hafnarfirði, auk þess sem einstaklingur var handtekinn í nótt þegar hann braust inn á vinnusvæði í Kópavogi. Innlent 20.2.2024 06:20
Myndi gista í Grindavík, en ekki með börn Magnús Tumi Guðmundsson jarðfræðingur segist myndu gista í Grindavík ef hann þyrfti þess, en ekki með börn. Hann segir fólk þurfa að vera viðbúið, ætli það sér að dvelja í bænum, að yfirgefa bæinn á hálftíma. Innlent 19.2.2024 22:33
Ekki talið náið samband og sleppur með skilorð Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir tvær líkamsárásir gegn konu. Hann var ákærður fyrir brot í nánu sambandi gegn konunni en dómurinn féllst ekki á að samband þeirra hefði verið náið. Innlent 19.2.2024 22:27
„Löngu tímabært að taka þetta skref“ „Einhvern tímann þurftum við að taka þetta skref,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra um fyrirhugaða Þjóðaróperu. Lilja hefur verið gagnrýnd af forsvarsmönnum Íslensku óperunnar fyrir áformin. Innlent 19.2.2024 21:53
Trump minnist á Navalní, en ekki Pútín Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hefur tjáð sig um dauða Alexei Navalní, sem lengi var höfuðandstæðingur Vladímír Pútíns Rússlandsforseta, án þess reyndar að minnast á Pútín. Erlent 19.2.2024 21:47
Herjaði á Krónuna og fékk fimm mánuði Karlmaður hefur verið dæmdur til fimm mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjölda þjófnaðarbrota. Hann virðist hafa haft dálæti á Krónunni þar sem hann stal vörum fyrir ríflega 300 þúsund krónur. Innlent 19.2.2024 20:55
Yfir 400 þúsund íbúar núna skráðir á Íslandi Fjöldi skráðra einstaklinga með lögheimili á Íslandi er kominn í fjögurhundruð þúsund, samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Raunverulegur mannfjöldi á Íslandi er þó talinn eitthvað lægri. Innlent 19.2.2024 20:44
Áhyggjuraddir og spurningaflóð á hitafundi um Grindavík „Ég er búin að sakna þess að þið upplýsið mig sem íbúa og fyrirtækjaeiganda um stöðuna í sveitarfélaginu og ég óska eftir því að frá og með deginum í dag verði þar breyting á.“ Innlent 19.2.2024 19:48
„Við náttúrulega hvorki pissum né kúkum“ Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar segir að byrjað verið að hleypa köldu vatni á bæinn í áföngum á miðvikudag. Hann segir mikilvægt að vandað verði til verka til þess að koma í veg fyrir tjón á mannvirkjum. Innlent 19.2.2024 19:27
Bandaríkjamenn leggja til að öryggisráðið krefjist vopnahlés Fulltrúar Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa samið tillögu að ályktun öryggisráðsins þar sem stuðningi við tímabundið vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs er lýst yfir. Erlent 19.2.2024 18:50
Íslenska óperan heyrir sögunni til: „Við höfum kallað þetta menningarslys“ Íslenska óperan heyrir sögunni til í kjölfar ákvörðunar menningarmálaráðherra um að stofna Þjóðaróperu. Þær sýningar sem áformað var að sýna á þessu ári falla niður. „Menningarslys,“ segir stjórnarformaður sem furðar sig á framkvæmdinni. Innlent 19.2.2024 18:44
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grindvíkingar mega frá og með morgundeginum dvelja allan sólarhringinn í bænum en verða þar á eigin ábyrgð. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann bæjarráðs um þessa breytingu, við verðum í beinni frá íbúafundi og heyrum í Magnúsi Tuma Guðmundssyni um mögulegar hættur í Grindavík. Innlent 19.2.2024 18:00
Óvænt aðstoð Íslendings í Búlgaríu og fengu skýrslurnar afhentar Fjölskylda Láru Bjarkar Sigrúnardóttur hefur fengið réttu pappíranna til þess að hægt sé að fljúga henni heim til Íslands frá Búlgaríu. Læknar hjá samtökunum SOS International, sem sjá um að meta ástand sjúklinga fyrir sjúkraflug, fara nú yfir skýrslurnar. Innlent 19.2.2024 17:57
Dæmdur í fangelsi en finnst ekki Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og rán, með því að kýla mann á sextugsaldri í andlitið og ræna af honum síma og bíllyklum í félagi við annan mann. Í dómi Héraðsdóms Vesturlands segir að óvíst sé um dvalarstað mannsins og ekki hafi tekist að birta honum fyrirkall. Innlent 19.2.2024 17:51