Innlent
Staðan grafalvarleg og stendur frekari uppbyggingu fyrir þrifum
Heilbrigðisnefnd Suðurlands telur að staða fráveitumála í Hveragerði sé grafalvarleg og með öllu óviðunandi. Að öllu óbreyttu sé ljóst að frekari uppbygging í sveitarfélaginu geti ekki átt sér stað.
Aldrei séð svona öldugang við landið: Hurfu undir öldu á Arnarstapa
Ferðamenn voru hætt komnir á Arnarstapa í fyrradag þegar þeir hurfu undir risastóra öldu sem skall á stapanum. Leiðsögumaður segist aldrei áður hafa séð slíkan öldugang og ekki bara á Arnarstapa heldur víðar um landið.
Köldu vatni hleypt á hafnarsvæðið
Byrjað er að hleypa köldu vatnið á kerfið á hafnarsvæðinu í Grindavík. Almannavarnir ítreka að mikilvægt er að eigendur fasteigna séu viðstaddir þegar vatni er hleypt á.
Dýri Guðmundsson er látinn
Dýri Guðmundsson endurskoðandi, fyrrverandi knattspyrnukappi og gítarleikari er látinn. Hann fæddist 1951 en lést eftir veikindi þriðjudagskvöldið 20. febrúar. Fjölmargir samferðamenn Dýra hvort sem er vinir eða ættingjar hafa minnst hans á samfélagsmiðlum.
„Ísland er uppselt“
Inga Sæland formaður Flokks fólksins segist vilja stöðva flæði fólks til landsins sem óskar eftir alþjóðlegri vernd. Hún fullyrðir að Ísland taki á móti of mörgum og segist vilja undanþágu frá Schengen samstarfinu.
Unglingum vísað af veitingastað og maður með vesen á slysadeild
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kölluð til í gærkvöldi og nótt vegna einstaklinga sem voru til vandræða. Þá bárust einnig tilkynningar um líkamsárás og innbrot og þjófnað í heimahús.
Engin byggingarleyfi í höfn þvert á fullyrðingar Arctic Fish
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur ekki gefið út byggingarleyfi vegna sjókvía. Þetta segir í svörum HMS við fyrirspurn fréttastofu en tilefnið eru ummæli sem höfð voru eftir framkvæmdastjóra Arctic Fish í Bæjarins besta um að leyfi væri í höfn.
Hótar aðgerðum fari hjólin ekki að snúast fyrir helgi
Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands segir að Samtök atvinnulífsins hafi fram á föstudag til þess að koma með eitthvað að samningaborðinu. Ellegar neyðist Fagfélögin til þess að grípa til aðgerða í kjaradeilunni.
Jón Baldvin heiðraður með afmælisávarpi á eistneska þinginu
Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins var heiðraður á 85 ára afmælisdegi sínum í Riigikogu, eistneska þinginu, í dag.
Ætlar að verða forseti og lærir af reynslumiklum frambjóðanda
Tónlistarmaðurinn Hafsteinn Þór Guðjónsson, betur þekktur sem Haffi Haff, aðstoðaði forsetaframbjóðandann Ástþór Magnússon við að afla framboði þess síðarnefnda undirskriftum í dag. Sjálfur segist Haffi stefna á framboð þegar fram líða stundir. Því hafi verið um að ræða frábært tækifæri til að öðlast smá reynslu.
Leggur til ellefu króna hækkun frekar en skerðingu opnunartíma
Ólafur Egilsson, leikhúsmaður með meiru, er ekki ánægður með ákvörðun Reykjavíkurborgar um að skerða opnunartíma sundlauga borgarinnar um helgar. Hann leggur til að hætt verði að hleypa erlendum eldri borgurum frítt ofan í eða aðgangsverð verði hækkað um 11,2 krónur.
Ungir fasteignaeigendur tapi öllu við uppkaup ríkisins
Ungir fasteignaeigendur sem keyptu nýverið sína fyrstu eign í Grindavík tapa margir hverjir öllu sínu eigin fé og koma út í milljóna tapi við uppkaup ríkisins að sögn Grindvíkings. Hann vill að ríkisstjórnin geri meira til að grípa unga kaupendur.
Sigurður Ágúst kjörinn formaður Félags eldri borgara
Sigurður Ágúst Sigurðsson var í dag kosinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni á aðalfundi félagsins með rúmlega 60 prósent atkvæða. Meint hallarbylting sem fjallað var um í dag raungerðist.
Ekki spennt fyrir lokuðum búsetuúrræðum
Þingflokksformaður Vinstri grænna fagnar því að ríkisstjórnin sammælist um heildarsýn í málefnum flóttafólks á Íslandi. Hann segir þingmenn flokksins ekki hafa áhuga á lokuðu búsetuúrræði á borð við það sem dómsmálaráðherra hefur kynnt.
Einkunnir, launamál og heilsufarsupplýsingar undir í árásinni á HR
Upplýsingar um einkunnir, agamál, launamál og fleiri viðkvæmar persónuupplýsingar voru á drifum Háskóla Reykjavíkur sem gögnum var stolið af í upphafi þessa mánaðar.
Hópur fólks finni fyrir þrýstingi um að fara inn í Grindavík
Tugir mættu til vinnu í Grindavík í dag eftir langt hlé. Á sama tíma er bærinn alveg vatnslaus, en vonir standa til að köldu vatni verði komið á hafnarsvæði bæjarins á morgun. Verkalýðsleiðtogi í Grindavík er gagnrýninn á opnun bæjarins.
Lífeyrissjóðamálið fer beint til Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur fallist á málskotsbeiðni Lífeyrissjóðs verslunarmanna í máli sjóðsfélaga á hendur sjóðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi eignafærslu milli kynslóða, með mismikilli lækkun mánaðarlegra greiðslna eftir aldri, ólögmæta og málinu var skotið beint til Hæstaréttar.
Funda aftur á morgun
Fundi breiðfylkingar stéttarfélaga Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins lauk án niðurstöðu síðdegis í dag. Aftur verður fundað á morgun.
Kvöldfréttir Stöðvar 2
Tugir mættu til vinnu í Grindavík í dag þegar atvinnustarfsemi hófst á ný eftir langt hlé. Á sama tíma er Grindavík enn nær alveg vatnslaus en vonir standa til að köldu vatni verði komið á bæinn á morgun. Við ræðum við formann Verkalýðsfélags Grindavíkur í myndveri, sem segir glórulaust að opna bæinn á þessu stigi.
Bjarni lét fulltrúa Rússa heyra það vegna Navalnís
Forstöðumaður sendiráðs Rússlands í Reykjavík var kallaður í utanríkisráðuneytið í dag þar sem honum var gerð grein fyrir afstöðu Íslands vegna dauða Alexei Navalní. Afstaðan er einföld; Ísland fordæmir meðferð rússneskra stjórnvalda á stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní, sem leiddi til andláts hans í síðustu viku.
Netþrjótar þykjast enn vera Sigríður Björk
Embætti ríkislögreglustjóra berast nú aftur tilkynningar um tölvupóst þar sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er ranglega titluð sem sendandi og skilaboðin ranglega merkt lögreglu.
Tóku þátt í leit að tveimur skipverjum en án árangurs
Að morgni þriðjudagsins 7. febrúar síðastliðnum fékk færeyska línuskipið Kambur á sig brotsjó suður af Suðurey í Færeyjum og lagðist á hliðina. Á skipinu var 16 manna áhöfn, 14 komust upp á skipið þar sem það flaut á hliðinni og var þeim bjargað um borð í þyrlu. Tveggja var hins vegar saknað.
Engar nýjar vísbendingar í leit að Jóni Þresti
Lögreglan á Írlandi hefur engar nýjar upplýsingar í rannsókn sinni á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar. Það staðfestir lögreglan í tölvupósti til fréttastofu.
Missti aldrei stjórn á aðstæðum í baðstofunni
Björn Leifsson, eigandi World Class, segir ekki rétt að hann hafi ekki ráðið við aðstæður sem upp komu í baðstofu Lauga Spa á laugardaginn. Greint var frá því á Vísi á mánudag að lögreglan hefði haft afskipti af góðkunningjum lögreglunnar í baðstofunni. Sérsveitarmenn hefðu mætt á svæðið.
Tobba nýjasti fjölmiðlamaðurinn í starf upplýsingafulltrúa
Þorbjörg Marinósdóttir hefur verið ráðin nýr upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Hún hefur störf á næstu dögum. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins.
Leika listir sínar við Viðey
Hnúfubakar hafa leikið listir sínar örskammt frá landi í Reykjavík undanfarna daga. Þeir virðast njóta athygli vegfarenda í botn.
Óttast hallarbyltingu í Félagi eldri borgara
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík fer fram nú klukkan 14. Ábendingar hafa borist um að deild úr Sjálfstæðisflokknum hyggist yfirtaka félagið.
Skilur ekki hvers vegna það er ekki allt brjálað vegna breytinganna
Talskona Stígamóta segir að með nýrri stefnu ríkisstjórnarinnar sé verið að segja flóttafólki að það sé ekki velkomið til Íslands. Hún gagnrýnir sinn gamla flokk fyrir aðkomu sína að tilvonandi búsetuúrræði sem stangist á við stjórnarskrána.
Aldrei séð annað eins í Reynisfjöru
Stórbrim var í Reynisfjöru í gær. Öldurnar gengu alla leið upp í bílastæði ofan fjörunnar og brimaði langt upp á stuðlabergið.
Hafði betur í baráttu við leigjanda sem skemmdi borðplötu
Kona sem leigði íbúð í tæplega eitt ár þarf að sjá á eftir 873 þúsund krónum af tryggingafé sínu til leigusalans vegna skemmda sem hún vann á nýlegum borðplötum og vangoldinnar leigu.