Körfubolti

Hefur trú á að kvennaíþróttir geti vaxið enn frekar
Caitlin Clark hefur lokið leik í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum. Hún yfirgefur sviðið sem stigahæsti leikmaður í sögu háskólaboltans, bæði karla- og kvenna megin. Ofan á það hefur hún hjálpað til við að brjóta hvert áhorfsmetið á fætur öðru.

LeBron sagði hælbítum Clarks til syndana
Körfuboltakonan frábæra, Caitlin Clark, fékk hrós úr ýmsum áttum fyrir frammistöðu sína í úrslitaleik bandaríska háskólakörfuboltans, meðal annars frá LeBron James.

Báðust afsökunar á ummælum á ÍR TV
Úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta er komin af stað og þar berjast fjögur félögum um að fylgja KR-ingum upp í Subway deild karla í körfubolta.

Martin kominn á fulla ferð með Alba Berlin
Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin unnu góðan níu stiga sigur gegn Riesen Ludwigsborg á heimavelli í dag.

Lakers á siglingu og Denver aftur komið í efsta sætið
LeBron James átti góðan leik fyrir Los Angeles Lakers sem er á góðri leið að tryggja sér sæti í umspili fyrir úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Þá er Denver Nuggets komið í efsta sæti Vesturdeildar á nýjan leik.

Tap hjá Elvari Má en sigur hjá Tryggva Snæ
Elvar Már Friðriksson og Tryggvi Snær Hlinason voru í eldlínunni með liðum sínum í spænsku og grísku úrvalsdeildunum í körfuknattleik í dag.

„Ekki allt satt og rétt í þessari yfirlýsingu“
Mótastjóri KKÍ segir ekki allt satt og rétt sem fram hafi komið í yfirlýsingu Grindavíkur vegna Íslandsmóts 11 ára drengja um helgina. Hann segir ljótt að gera hlutina eins og Grindvíkingar hafi gert.

Sigurganga Warriors á enda og spennan eykst í efri hluta austursins
Það styttist í að deildakeppninni í NBA ljúki en úrslitakeppnin hefst eftir rúma viku. Mesta spennan er í efri hluta Austurdeildarinnar þar sem aðeins tveimur sigurleikjum munar á liðunum í sætum tvö til fimm.

Bronny James skráir sig í nýliðaval NBA deildarinnar
Bronny James, sonur NBA goðsagnarinnar LeBron James ætlar sér að vera á meðal leikmanna í komandi nýliðavali NBA deildarinnnar.

Randle undir hnífinn og missir af úrslitakeppninni með Knicks
Julius Randle hefur undanfarnar vikur gert allt sem hann getur til að vera klár fyrir úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Nú er ljóst að hann þarf að fara undir hnífinn og verður því ekki með New York Knicks fyrr en á næstu leiktíð.

Gert upp á milli strákaliða eftir getu: „Blaut tuska í andlit drengjanna“
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur sent frá sér harðyrta yfirlýsingu vegna Íslandsmóts 11 ára drengja sem fara á fram á Ísafirði um helgina. Í henni segir að KKÍ hafi gert upp á milli iðkenda, með því að fækka leikjum liða í B-, C- og D-riðli en ekki í A-riðli.

Stjarnan er tölfræðilega besta lið sögunnar sem komst ekki í úrslitakeppni
Stjörnumenn misstu af úrslitakeppni Subway deildar karla í körfubolta þrátt fyrir að vinna helming leikja sinna í deildarkeppninni. Það hefur aldrei gerst áður.

Arnar barðist við tárin eftir kveðjuleik: „Það mun svíða mjög lengi“
Körfuboltaþjálfarinn Arnar Guðjónsson leyndi ekki tilfinningum sínum eftir síðasta leik sinn sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í gærkvöld. Hann gengur að vissu leyti stoltur frá borði, enda unnið fleiri titla en aðrir þjálfarar á síðustu sex árum, en kveðjutímabilið mun svíða lengi.

Stjarnan staðfestir komu Baldurs: „Ekki slæmt bú að fá að taka við“
Eins og Vísir greindi frá í gær hefur körfuknattleiksdeild Stjörnunnar ráðið Baldur Þór Ragnarsson sem þjálfara karlaliðs félagsins. Hann kveðst afar spenntur fyrir starfinu.

Kjartan minntist Bjarka Gylfasonar: „Erum búnir að vera að vinna úr þessu sem lið“
Álftanes vann níu stiga sigur gegn Hetti 63-54. Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness, var ánægður með sigurinn en fór einnig yfir áfallið sem liðið varð fyrir þegar Bjarki Gylfason féll frá á dögunum en hann var hluti af liðinu.

„Ætlum að reyna að fara djúpt í úrslitakeppnina og sækja dolluna“
Kristinn Pálsson var hetja Valsmanna í kvöld þegar liðið lagði Njarðvík í framlengdum leik, 106-114. Kristinn skoraði 41 stig og tíu fyrsti stig liðsins í framlengingunni.

Svona lítur úrslitakeppni Subway deildar karla út
Lokaumferð deildarkeppni Subway deildar karla í körfubolta fór fram í kvöld og nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppni deildarinnar. Það eru Valsmenn sem standa uppi sem deildarmeistarar þetta tímabilið. Haldið ykkur fast, skemmtilegasti hluti tímabilsins er framundan.

„Ekki svona sem ég sá þessi sex ár enda“
Það var tilfinningaþrungið viðtal sem Arnar Guðjónsson veitti blaðamanni eftir að ljóst varð að Stjarnan kæmist ekki í úrslitakeppni og störfum hans hjá karlaliði félagsins væri lokið.

„Vorum svolítið að reyna að tapa leiknum sjálfir“
Þór Þorlákshöfn vann sterkan sex stiga sigur er liðið tók á móti Keflavík í lokaumferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld, 106-100.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Breiðablik 96-80 | Stjarnan sá um sitt en það dugði þeim ekki
Stjarnan vann öruggan 96-80 sigur á Breiðabliki í lokaumferð Subway deildar karla.Því miður fyrir Stjörnuna dugði það þeim ekki til að tryggja sæti í úrslitakeppninni. Höttur tapaði gegn Álftanesi og Stjarnan endaði því í 9. sæti deildarinnar, utan úrslitakeppninnar.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Grindavík 100-111| Gestinir úr Grindavík sterkari á lokasprettinum og tryggðu heimaleikjaréttinn
Grindvíkingar sóttu tvö stig þegar liðið heimsótti Hauka í Ólafssal að Ásvöllum í lokaumferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 100-111 Grindavík í vil.

Umfjöllun og viðtöl: Álftanes - Höttur 63-54 | Álftanes sá til þess að Stjarnan komst ekki í úrslitakeppnina
Álftanes vann níu stiga sigur gegn Hetti 63-54. Fyrri hálfleikur var afar slæmur hjá báðum liðum en heimamenn spiluðu betur í síðari hálfleik og unnu nokkuð öruggan sigur.

Martin stoðsendingahæstur í tapi Alba Berlin
Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Martin Hermannsson leikmaður Alba Berlin átti góðan leik en þurfti að sætti sig við tap gegn Partizan Belgrade í Evrópudeildinni í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 106-100 | Sterkur sigur Þórs í lokaumferðinni
Þór Þorlákshöfn vann sex stiga sigur á Keflavík í lokaumferð Subway deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur í Þorlákshöfn 106-100 Þórsurum í vil.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Valur 106-114 | Kristinn Pálsson skaut Njarðvík í kaf
Njarðvíkingar tóku á móti löskuðum deildarmeisturum Vals í Ljónagryfjunni í kvöld. Valsmenn höfðu í raun ekki að neinu að keppa og gátu leyft sér að taka lífinu með temmilegri ró en Njarðvíkingar í hörku baráttu um 2. sætið og þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að ná því.

Fagnað í Síkinu: Íslandsmeistararnir fara í úrslitakeppnina
Íslandsmeistarar Tindastóls tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitakeppni Subway deildar karla í körfubolta með sigri á Hamar í lokaumferð deildarkeppninnar. Tindastóll heldur inn í úrslitakeppnina sem liðið í sjöunda sæti og munu mæta liði Grindavíkur í fyrstu umferð.

„Auðvitað vonum við að Álftnesingar mæti með bumbuboltaliðið sitt“
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, segir það hafa lítið upp á sig að spá í aðra leiki en þann milli Stjörnunnar og Breiðabliks í kvöld. Stjarnan þarf að treysta á önnur úrslit en sín eigin til að komast í úrslitakeppnina.

Staðfesta að Ólafur Jónas taki við kvennaliðinu
Stjarnan hefur staðfest frétt Vísis frá því í morgun að Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hafi ráðið Ólaf Jónas Sigurðsson sem þjálfara kvennaliðs Stjörnunnar.

Jerry West inn í Heiðurshöll körfuboltans í þriðja sinn
Jerry West er á leiðinni í Heiðurshöll körfuboltans, Naismith Basketball Hall of Fame, en hann ætti að þekkja þá tilfinningu vel. Þessi goðsögn NBA-deildarinnar hefur tvisvar áður verið tekinn inn í Heiðurshöllina.

Hér geta liðin endað eftir kvöldið: Spenna í lokaumferð Subway
Í kvöld kemur í ljós hvaða lið mætast í átta liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta en útreikningurinn í lok kvöld gæti orðið svolítið flókinn. Við ætlum að reyna einfalda aðeins þessa flóknu stöðu.