Lífið

Vinir Daníels gleymdu aldeilis ekki fimm ára gömlu loforði
Það er óhætt að segja að Daníel Óskar Jóhannesson hafi staðið við stóru orðin sem hann lét falla í góðra vina hópi árið 2017. Þá sagðist hann ætla að mæta blár í bíó þegar framhaldsmynd af Avatar kæmi út. Myndin var frumsýnd í kvöld.

DJ Sóley og Birna bankastjóri fögnuðu Fröken Reykjavík
Nýjasti veitingastaðurinn í fjölbreyttri flóru Reykjavíkur opnaði í gærkvöldi en það er staðurinn Fröken Reykjavík sem staðsettur er í hjarta miðborgarinnar við Lækjargötu 12. Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór mætti og tók að sjálfsögðu lagið Fröken Reykjavík.

Fékk nóg af því að þurfa að ritskoða bækur barna sinna og gaf út sína eigin
Athafnakonan Eva Mattadóttir brennur fyrir því að efla sjálfstraust barna. Henni fannst skortur á uppbyggilegum barnabókum og ákvað að ganga sjálf í málið og skrifa sína eigin barnabók, Ég get þetta! sem kom út í nóvember.

Pakkar jólagjöfunum inn í klúta og gömul föt
Fatahönnuðurinn og jógakennarinn Eva Dögg Rúnarsdóttir er mjög frumleg þegar kemur að innpökkun á gjöfum og hátíðarskreytingum.

Brjálað að gera í sörubakstri hjá húsmóður í Hveragerði
Húsmóðir í Hveragerði hefur meira en nóg að gera fyrir jólin því hún tekur að sér að baka sörur fyrir fólk en þær þykja ómissandi á mörgum heimilum um jólin.

Íslandsvinir ársins 2022: Rómantík í lóninu, spenna á Suðurnesi og heimsókn í Icelandverse
Ferðaþjónustan komst skrefi nær því að komast í eðlilegt horf í ár eftir harðar samkomu- og ferðatakmarkanir árin 2020 og 2021. Öllum takmörkunum var aflétt hér á landi í febrúar og streymdu ferðamenn til landsins, þar á meðal fræga fólkið. Íslensk náttúra virðist áfram vera helsta aðdráttaraflið.

Stjörnurnar minnast tWitch: „Hvorki höfuð mitt né hjarta ná utan um þetta“
Síðasta sólarhringinn hafa samfélagsmiðlar og fjölmiðlar vestanhafs fyllst af minningarorðum um dansarann og plötusnúðinn tWitch. Í gær var tilkynnt að tWitch hefði fallið fyrir eigin hendi, aðeins 40 ára gamall.

Festist á stefnumóti í sjö klukkustundir
„Ég byrjaði tólf ára í útvarpi,“ segir Siggi Gunnars, tónlistarstjóri Rásar 2 og spinningkennari. Siggi var gestur í Veislunni hjá Gústa B á FM957.

Yfir fjörutíu kíló farin eftir sýndarmagabandsdáleiðslu
Þættirnir Afbrigði eru í umsjón Ingileifar Friðriksdóttur hófu göngu sína á nýjan leik á Stöð 2 á dögunum en þar er fjallað um fólk sem lifir óhefðbundnum lífsstíl og er óhætt að segja að um afar sérstaka og öðruvísi þætti sé að ræða.

„Ég sagði henni að einn daginn myndi ég taka mynd af jörðinni frá tunglinu“
Japanskur milljarðamæringur, tónlistarmaður og leikari verður fyrsti almenni borgarinn sem fer á braut um tunglið. Hann hefur valið átta manna áhöfn listamanna til að fara með sér í þetta vægast sagt óvenjulega ferðalag. Einn af þeim er bandarískur maður sem búsettur er á Íslandi.

RAX flaug yfir ævintýraheim hálendisins
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, eða RAX, flaug í vikunni yfir hálendið og myndaði fjöll og jökla. Þetta er eitthvað sem hann gerir reglulega og lítur hann meðal annars á það sem æfingu fyrir eldgos.

Fer alltaf í bótox á sumrin: „Þannig að ég nái ekki að píra augun á móti sól“
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Krassandi konur ræðir þáttastjórnandinn Ásdís Rán við Láru Sigurðardóttir lækni hjá Húðinni og höfund bókarinnar Húðin.

Vonast eftir jólakraftaverki vegna heilsuspillandi myglu
„Ég er svona um það bil að bugast,“ segir tónlistarkonan Þórunn Antonía. Hún er í leit að íbúð fyrir sig og börnin sín tvö eftir að mygla fannst í íbúð þeirra.

Fagnar því að hafa lokið meðferð eftir að hafa glímt við átröskun í rúmlega fimm ár
Lenya Rún Taha Karim, lögfræðinemi og varaþingmaður Pírata, fagnaði mikilvægum áfanga í gær þegar hún útskrifaðist úr rúmlega átta vikna innlagnarmeðferð vegna átröskunar, eftir rúmlega fimm ára baráttu við sjúkdóminn.

Hágrét á miðju sviðinu eftir tilfinningalegan rússíbana
„Undirbúningur er í fullum gangi og gengur mjög vel. Það er fullt af lausum endum sem þarf að græja en þetta er allt að koma heim og saman,“ segir rapparinn Gauti Þeyr Másson sem heldur Jülevenner Emmsjé Gauta í næstu viku.

„Þú átt meiri pening en þú heldur“
Hrefna Björk Sverrisdóttir, eigandi veitingastaðarins ROK sem er nýbúin að gefa út bókina, Viltu finna milljón.

Brynja Scheving og Þorsteinn gengu í það heilaga í Las Vegas
Brynja Scheving, skólastjóri í Balletskóla Eddu Scheving, og Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í knattspyrnu, eru hjón. Þau gengu í það heilaga í sól og blíðu í Las Vegas í Bandaríkjunum í gær.

Þorvaldur Davíð valinn í Shooting Stars hópinn fyrir 2023
Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur verið valinn í Shooting Stars hópinn árið 2023. Á hverju ári velja samtökin European Film Promotion (EFP) tíu unga og efnilega leikara og leikkonur.

Djammið vaknaði af værum blundi
Fyrsta Þjóðhátíðin í þrjú ár, mannfjöldi í miðbænum á ýmsum hátíðum og djammið vaknaði af værum blundi.

Frumleg viðreynsluaðferð virðist hafa virkað
Rapparinn Jack Harlow og tónlistarkonan Dua Lipa eru sögð vera að slá sér upp saman. Harlow samdi lag sem heitir Dua Lipa og var á nýrri plötu rapparans, sem gefin var út í maí á þessu ári.

Bestu erlendu lög ársins að mati Óla Dóra
Í árslistaþáttum Straums á X-977 verður farið gaumgæfilega yfir tónlistarárið 2022. Á mánudaginn taldi Óli Dóri umsjónarmaður útvarpsþáttarins niður bestu erlendu lög ársins 2022.

Instagram reikningi Britney lokað eftir háværar samsæriskenningar
Aðdáendur poppprinsessunnar Britney Spears eru áhyggjufullir og hafa ýmsar skrautlegar samsæriskenningar skotið upp kollinum síðustu vikur. Sú samsæriskenning sem er hvað háværust er að söngkonan sé í raun lokuð inni á geðdeild og að eiginmaður hennar, Sam Asghari, sé með staðgengil fyrir hana sem kemur fram á samfélagsmiðlum. Hollywood spekúlantinn Birta Líf Ólafsdóttir fór yfir málið í Brennslutei vikunnar.

Glatt á hjalla á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin fóru fram í Hörpu um helgina en hátíðin var nú haldin í 35. sinn. Glatt var á hjalla og virtust gestir hátíðarinnar skemmta sér konunglega.

Styrktu Ljónshjarta um 8,5 milljónir eftir bolasölu
Konur eru konum bestar styrkti Ljónshjarta, samtök sem styðja við ungt fólk sem missir maka og börn sem missa foreldra, um 8.500.000 krónur og afhentu þann 9. desember síðastliðinn.

Var komin með ellibletti 25 ára og tók þá húðina í gegn
Lára G. Sigurðardóttir læknir og doktor í læknavísindum hefur rannsakað áhrif ýmissa fæðutegunda á húðina. Vala Matt ræddi við hana í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Geggjað jólaskreytt 45 metra mastur á Hvolsvelli
Ef einhvers staðar er hægt að tala um risa jólaskreytingu í ár, þá er það á Hvolsvelli því þar er búið að setja jólaseríur upp í fjörutíu og fimm metra hæð á símamastri, sem þar stendur. Rúmlega kílómetri af blikkandi seríum er á mastrinu.

„Tíminn læknar ekki öll sár og síst af öllu sálræn sár“
„Fyrir tíu árum þennan dag, var ég einn á heimleið norður í jólafrí. Í þann mund sem ég er að byrja að brölta upp Öxnadalsheiðina er mér allt í einu hugsað til frænda míns, að ég verði að hringja í hann þegar heim er komið. Í sömu andrá sé ég einstaklega fallegt stjörnuhrap. Það sem ég vissi ekki þá, var að okkar síðasta samverustund og samtal væri þegar búið að eiga sér stað.“

Björg og Tryggvi eignuðust son
Fjölmiðlakonan Björg Magnúsdóttir og auglýsingahönnuðurinn Tryggvi Þór Hilmarsson eignuðust son þann 7. desember síðastliðinn. Frá þessu greinir Björg á Instagram.

„Fyrir hvern ertu á lífi ef þú þorir ekki að prófa það sem þig langar til að gera?“
Samfélagsmiðlastjarnan Lil Curly, sem heitir réttu nafni Arnar Gauti Arnarsson, var feiminn í æsku en gerir nú TikTok myndbönd fyrir fleiri milljónir manns út um allan heim. Curly er óhræddur við áskoranir og tengir lítið við fólk sem lætur gagnrýni stoppa sig.

Eros Ramazzotti heldur tónleika í Laugardalshöll
Stórstjarnan ítalska Eros Ramazzotti er á leiðinni til Íslands. Hann heldur tónleika í Laugardalshöll þann 26. ágúst á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nordic Live Events.