Menning

RAX Augnablik: „Vorum klikkaðir að fljúga í þessu“
Snemma árs 1981 strönduðu þrjú skip við strendur Íslands, Katrín VE, Sigurbára, og Heimaey. Ragnar Axelsson flaug og myndaði ströndin og björgun áhafnanna.

Vínarborg byrjar á OnlyFans
Ferðamálastofa Vínarborgar í Austurríki hefur opnað OnlyFans-aðgang í þeim tilgangi að birta listaverk sem talin eru of kynferðisleg fyrir aðra samfélagsmiðla.

Félag málandi kvenna heldur sína fyrstu sýningu
Í dag hefst listasýning sextán kvenna í Listasal Mosfellsbæjar sem gengur undir heitinu Endurheimt(a)/Reclaim(ing). Þetta er fyrsta sýning listahópsins Félag málandi kvenna sem er óformlegt stuðningsnet við kvenkyns málara.

Heimsfrægt listaverk eftir Banksy selst á rúma þrjá milljarða króna
Listaverk eftir breka götulistamanninn Banksy seldist á rúma þrjá milljarða á uppboði í London í dag. Verðið er það hæsta sem fengist hefur fyrir Banksy-verk.

Nýi Súpermann er tvíkynhneigður
DC Comics myndasagnarisinn hefur tilkynnt að nýjasta útgáfan af persónu Súpermann verði tvíkynhneigð. Í næsta hefti myndasögunnar verður ofurhetjan ástsæla sýnd í ástarsambandi við karlmann.

RAX Augnablik: Litla barnið dó úr lungnabólgu því það var engin leið að sækja það
„Þegar ég var búinn að vera að mynda í þorpinu í nokkra daga þá kemur Tobias hlaupandi og segir við verðum að fara núna, það er að skella á stormur.“

Abdulrazak Gurnah hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
Tansaníski skáldsagnahöfundurinn Abdulrazak Gurnah hlaut í dag bókmenntaverðlaun Nóbels.

Útvarpsmaðurinn Guðni Már Henningsson er látinn
Guðni Már Henningsson útvarpsmaður er látinn, 69 ára að aldri. Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2 og samstarfsmaður Guðna Más til margra ára, greindi frá láti hans í Popplandi á Rás 2 í hádeginu.

RAX Augnablik valinn Menningarþáttur ársins á Eddunni
Þátturinn RAX Augnablik vann í gær til Edduverðlauna í flokknum Menningarþáttur ársins.

Upplifunarverk fyrir yngstu leikhúsgestina þar sem öll skynfæri eru virkjuð
„Tjaldið er fyrir allra yngstu leikhúsgestina og er ætlað börnum þriggja mánaða til þriggja ára. Verkið er vandað og metnaðarfullt og því munu foreldrar og eldri systkini njóta þess að koma með líka,“ segir Agnes Wild leikstjóri barnaverksins Tjaldið.

„Maður svaf ekki dúr það var svo mikið brölt á þeim“
„Mykines er svolítið erfið eyja eða hefur verið af því að það voru oft svo miklir straumar í kringum eyjuna. Ég held að hún hafi verið áttatíu og eitthvað daga einhvern tímann út af brimi í kringum eyjuna af því að það komst enginn að henni,“ segir Ragnar Axelsson.

Seldist upp á tíu sýningar á tólf klukkutímum
Forsala á leikritið Emil í Kattholti hófst á miðnætti í gær og á hádegi í dag var búið að seljast upp 10 sýningar en sýningin verður á stóra sviði Borgarleikhússins.

Yrsa tilnefnd til bókmenntaverðlauna á Bretlandi
Bókin Gatið eftir rithöfundinn Yrsu Sigurðardóttur hefur veri ð tilnefnd til Petrona verðlaunanna í Bretlandi, sem veitt eru bestu norrænu glæpasögunni. Yrsa hefur hlotið verðlaunin áður, árið 2015 fyrir Rakið og var tilnefnd til verðlaunanna fyrir Aflausn í fyrra.

Trúa á þolendum en ekki dæma áður en brot séu sönnuð
Hilmir Snær Guðnason leikari segir ójafnrétti að finna alls staðar í samfélaginu. Það gildi um leikhúsið sem aðra anga íslensks samfélags. Á tímabili hafi umræðan í tengslum við metoo farið út í öfgar.

Býður ekki upp á vellíðunarnasl fyrir hræddar sálir
Guðni Elísson prófessor í bókmenntafræði hefur sent frá sér skáldsögu og því er haldið fram hér fullum fetum að um stórtíðindi sé að ræða. Bókin er doðrantur, 800 síður og marglaga. Um leið og þetta er algjör veisla fyrir bókmenntafræðinga; þaulhugsuð bygging og ótal skírskotanir til bókmenntasögunnar er hún eins og Nafn Rósarinnar eftir Umberto Eco spennusaga á yfirborðinu.

Elif Shafak handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag rithöfundinum Elif Shafak alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík. Að afhendingu lokinni flutti Elif Shafak fyrirlestur Halldórs Laxness.

Skipuleggja femíníska kvikmyndahátíð í Reykjavík
RVK Feminist Film Festival (RVK FFF) verður haldin í þriðja sinn 13.-16. janúar 2022. Opið er nú fyrir umsóknir í stuttmyndakeppnina Sister awards og einnig verður í ár keppni fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum.

Einn af risum franskrar kvikmyndasögu fallinn frá
Franski leikarinn Jean-Paul Belmondo, einn af risum franskrar kvikmyndasögu, lést í gær, 88 ára að aldri. Hann var ein af helstu stjörnum frönsku nýbylgjunnar innan kvikmyndanna.

Rómeó og Júlía í mótun fram á lokastundu fyrir frumsýningu
Um helgina var frumsýnt verkið Rómeó og Júlía í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. Um er að ræða einstaka uppsetningu á þessu fræga verki og nær Þorleifur algjörlega að setja sinn svip á sýninguna.

Dramatísk þáttaröð um kvótakerfið á Íslandi vann virtustu verðlaunin
Íslenska sjónvarpsþáttaröðin Verbúð, sem frumsýnd verður síðar á árinu, var valin besta sjónvarpsþáttaröðin á evrópsku verðlaunahátíðinni Series Mania sem fram fór í Lille í Frakklandi í gærkvöldi.

Höfundur tónlistar Grikkjans Zorba er fallinn frá
Gríska tónskálið Mikis Theodorakis, sem þekktastur er fyrir að hafa tónlist myndarinnar Grikkjans Zorba frá árinu 1964, er látið, 96 ára að aldri.

„Einar Áskell er einhvern veginn erkitýpískt barn“
„Einar Áskell er einhvern veginn erkitýpískt barn. Hann er hið týpiska barn. Ég held að það sé þess vegna sem maður sem foreldri hefur svo gaman af því að lesa bækurnar um Einar Áskel. Maður kannast við svo ótrúlega margt frá þeim börnum sem maður þekkir í fari hans.“

Með mölbrotna sjálfsmynd og lifir fyrir samþykki fólks
„Við höfum svolítið talað um að fólk eigi að búa sig undir ótrúlegasta uppistand Íslandssögunar, ég held mig við það,“ segir Stefán Ingvar Vigfússon uppistandari og meðlimur VHS.

Höfundur bókanna um Einar Áskel er látinn
Sænski rithöfundurinn Gunilla Bergström, sem þekktust er fyrir bækurnar um Einar Áskel, er látin 79 ára að aldri.

Listamaður vill gera andlitsúða úr tárum fólks
Gígja Jónsdóttir listamaður biðlar nú til almennings að gráta í táraglas fyrir tárabrunn á sýningu hennar, þar sem hún vill safna tárum úr öllum áttum.

Sunna Borg og Björgvin Franz stíga á svið með Jóni Gnarr
Menningarfélag Akureyrar tilkynnti í dag að Sunna Borg og Björgvin Franz Gíslason munu leika í sýningunni Skugga-Sveinn.

Sigurður Guðmundsson gefur listaverk að verðmæti 125 milljóna króna
Ars longa, nýstofnuðu alþjóðlegu samtímalistasafni staðsettu á Djúpavogi, hefur borist listaverkagjöf tuttugu og sjö listaverka eftir myndlistarmanninn Sigurð Guðmundsson. Öll verkin má finna á sýningu Sigurðar, Alheimurinn er ljóð, sem opnuð var í Bræðslunni á Djúpavogi 10. júlí og stendur til 15. ágúst næstkomandi. Sýningin er sú síðasta sem haldin er í Bræðslunni eftir átta ára samfellt sýningarhald.

Enginn klappaði þegar sýningunni lauk
Á Grímunni í ár var barnasýninginn Kafbátur í leikstjórn Hörpu Arnardóttur verðlaunuð barnasýning ársins. Kjartan Darri Kristjánsson, ungur leikari sem kom til starfa í Þjóðleikhúsinu síðasta vetur, var þar valinn leikari ársins í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína sem vélmennið Anon í Kafbáti.

Náttúrulitun í nútímasamhengi á Hönnunarsafni Íslands
Sigmundur Páll Freysteinsson er fatahönnuður sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2019. Hann hefur dvalið í rannsóknarrými Hönnunarsafns Íslands í sumar með það að markmiði að þróa ný kerfi í sjálfbærri hönnun og umhverfisvænni framleiðslu, sem nýtir auðlindir Íslands.

Rétt nær að standa við gamalt loforð með skáldsögu fyrir sjötugt
Að fara á eftirlaun getur reynst þeim erfitt sem eru fullfrískir og orkumiklir og vilja ekki sitja aðgerðalausir heilu og hálfu dagana. Gróa Finnsdóttir er ein þeirra en hún deyr ekki ráðalaus og mun nú eftir helgi efna gamalt loforð með útgáfu sinnar fyrstu skáldsögu rétt fyrir sjötíu ára afmælisdaginn. Þannig leggur hún í leiðinni grunn að nýjum starfsferli sínum sem rithöfundur á eftirlaunaaldrinum.