Neytendur
16 17 18 19 20 21 22 23 … 23 ›
Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn hækkar breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,35 prósentustig í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans. Neytendur 24.11.2021 17:25
Baguette með skinku og osti komið aftur á matseðilinn hjá Icelandair Eftir þriggja ára hlé er baguette með skinku og osti loks komið aftur á matseðilinn hjá Icelandair. Þreyttir ferðalangar geta því glaðst að nýju og notið þessa sívinsæla réttar þegar þeir eru á ferðalagi með flugfélaginu. Neytendur 24.11.2021 15:15
Fjórir staðir koma til greina fyrir nýja verslun ÁTVR Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins ætlar að flytja verslun fyrirtækisins í Austurstræti í nýtt húsnæði á næstunni. Fjórir staðir koma til greina í miðborginni. Neytendur 17.11.2021 23:25
Nói innkallar konfekt vegna mögulegra málmagna í fyllingunni Nói Síríus hefur innkallað tvær pakkningar af Nóa Konfekti vegna mögulegra málmagna í fyllingu konfektmolanna. Um er að ræða Konfekt í lausu, 560 gr., og Konfektkassa 630 gr. Neytendur 11.11.2021 12:32
Bátur dagsins er allur Bátur dagsins á Subway heyrir nú sögunni til og ekki er lengur hægt að kaupa stakan bát dagsins á sérstöku tilboðsverði. Þess í stað býður samlokurisinn nú upp á svokallaða máltíð dagsins sem inniheldur bát ásamt gosi og meðlæti. Neytendur 9.11.2021 15:49
Lyfjabúrið og Lyfja dýrustu apótekin Ódýrast er að kaupa lyf í apóteki Costco og í Rimaapóteki en dýrast í Lyfjabúrinu og Lyfju. Þetta kemur fram í nýjum verðsamanburði ASÍ, sem kynntur var í gær. Neytendur 6.11.2021 09:12
Atlantsolíu bannað að fullyrða um „cheapest gas stop“ Neytendastofa hefur bannað tvær fullyrðingar sem notaðar hafa verið í auglýsingum Atlantsolíu þar sem þær eru taldar vera villandi. Fullyrðingarnar sem um ræðir eru annars vegar „cheapest gas stop“ og hins vegar „Lægsta verðið er hjá Atlantsolíu Kaplakrika og Sprengisandi“. Neytendur 3.11.2021 14:25
Bjóða viðskiptavinum að sleppa við afgreiðslukassann Húsasmiðjan hefur tekið í notkun sérstakt sjálfsafgreiðsluapp þannig að viðskiptavinir geti greitt fyrir vörur um leið og þær eru skannaðar ofan í körfu í verslun. Viðskiptavinir þurfa því ekki að greiða við kassann. Neytendur 2.11.2021 15:01
Breytingar á gjaldskrá Strætó samhliða innreið Klapp-greiðslukerfisins Samhliða innleiðingu á nýja rafræna greiðslukerfinu Klapp þann 16. nóvember 2021 verða einnig gerðar breytingar á gjaldskrá Strætó. Neytendur 2.11.2021 12:19
Kvartaði til Samgöngustofu vegna of dýrs flugmiða Farþegi sem vildi komast heim til Spánar frá Íslandi í tæka tíð fyrir lokun landamæra Spánar á síðasta ári vegna kórónuveirufaraldursins hafði ekki erindi sem erfiði hjá Samgöngustofu, eftir að hann kvartaði undan því að flugmiðinn sem hann keypti hafi verið of dýr. Neytendur 28.10.2021 09:12
Söguleg verðhækkun hjá Domino‘s Domino‘s á Íslandi hefur hækkað verð á hinu vinsæla þriðjudagstilboði úr þúsund krónum í 1.100 krónur. Ljóst má vera að margir viðskiptavinir Domino‘s ráku upp stór augu í dag þegar þeir tóku eftir hækkuninni, enda hafa fjölmargir haft samband við fréttastofu til að segja frá þessum tímamótum. Neytendur 26.10.2021 13:10
Villandi framsetning Sparibíls að tala um „sömu bíla, bara miklu ódýrari“ Rangar fullyrðingar koma fram í auglýsingum Bonum, sem rekur Sparibíl í Hátúni í Reykjavík, um þá bíla sem félagið selji og eru þær taldar villandi. Neytendur 26.10.2021 07:01
Ekki tilefni til aðgerða vegna deilu um auðkennið Norðurhús Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu í deilu tveggja félaga um notkun á auðkenninu Norðurhús á vefsíðunni nordurhus.is og á Facebook-síðunni facebook.com/nordurhus. Neytendur 22.10.2021 08:46
Verðið hjá Póstinum hækkar á landsbyggðinni Verð á sendingum Íslandspósts á fjölpósti og sendingum á pökkum 0-10 kg að þyngd tekur breytingum um mánaðamótin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum. Neytendur 20.10.2021 16:22
Innkalla núðlur vegna glerbrota Matvælastofnun hefur varað við einni framleiðslulotu af núðlunum Mama tom yum pork sem fyrirtækið Lagsmaður flytur inn vegna glerbrots. Neytendur 19.10.2021 13:49
Eru Íslendingar lélegir neytendur? Verðlagseftirlit ASÍ og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um samkeppnis- og neytendamál í dag klukkan 8:30 til 10 á Grand Hótel. Neytendur 19.10.2021 07:45
Landsbankinn hækkar óverðtryggða vexti Landsbankinn hefur tilkynnt að breytilegir og fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum muni hækka frá og með morgundeginum. Vextir á verðtryggðum íbúðalánum verða óbreyttir. Neytendur 18.10.2021 18:30
Ákvörðun verðlagsnefndar búvara skilað sér í hærra verði til neytenda Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í sex verslunum af átta síðasta hálfa árið. Mest hækkaði vörukarfan í Heimkaup eða 3,4% en minnst í Krambúðinni og Kjörbúðinni, 0,5% í hvorri verslun fyrir sig. Neytendur 15.10.2021 12:10
Óttast skort á vetrardekkjum á landinu Sumir á landinu gætu lent í að fá ekki vetrardekk í ár vegna skorts á sendingum frá Asíu, að sögn Jóhanns Jónssonar, markaðs- og birgðastjóra Dekkjahallarinnar. Flestir dekkjasalar landsins hafa lent í einhverjum vandræðum með pantanir sínar í ár og fá hluta þeirra annaðhvort seint eða ekki. Neytendur 15.10.2021 08:00
Eldsneytisverð ekki verið hærra á Íslandi frá árinu 2014 Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað skarpt seinustu mánuði og hefur sú þróun skilað sér greinilega til íslenskra neytenda. Neytendur 13.10.2021 07:02
Svona er að fá heita máltíð senda heim með dróna Flutningafyrirtækið Aha.is hlaut á dögunum verðlaun fyrir framtak ársins á sviði umhverfismála. Flotinn rafvæddur og ýmislegt göfugt í þeim dúr, en það sem er meira um vert: Þeir senda heim mat með dróna. Neytendur 11.10.2021 22:40
Fær ekki vaskinn endurgreiddan vegna vinnu við upphækkun jeppa Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu manns um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við upphækkun jeppa og koma honum á stærri dekk. Ekki voru taldar forsendur til að skýra endurgreiðsluheimild virðisaukaskattslaga svo rúmt, að hún tæki til slíkra breytinga. Neytendur 11.10.2021 16:13
Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellusmit Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingi frá Matfugli en umbúðirnar kunna að vera merktar Ali, Bónus eða FK. Ástæðan er grunur um salmonellusmit. Matfugl hefur innkallað vöruna. Neytendur 6.10.2021 08:26
Neytendastofa innkallar andlitsgrímur frá Xiaomi Neytendastofa hefur innkallað andlitsgrímu af gerðinni Smartmi frá framleiðandanum Xiaomi, sem seld var í verslun Tunglskins ehf. Þá hefur sala og afhending grímunnar jafnframt verið bönnuð. Neytendur 4.10.2021 20:31
Telja krísu-útrýmingarsölu á perneskum teppum í Kópavogi ekki standast lög Formaður Neytendasamtakanna segir auglýsingu um „krísu-útrýmingarsölu“ á persneskum teppum, sem birtist í aukablaði með Morgunblaðinu í morgun, ólöglega. Neytendur 2.10.2021 19:03
Vara við Sprota-sparibaukum Landsbankans Neytendastofa hefur varað við Sprota sparibaukum Landsbankans sem bankinn afhendir börnum. Baukarnir eru sagðir geta verið hættulegir og ekki ætlaðir við leik barna, enda kunni smámynt af detta úr baukunum sem geti valdið köfnunarhættu hjá börnum. Neytendur 1.10.2021 10:10
Innkalla hnetusmjör vegna of mikils magns myglueiturs Matvælastofnun varar við neyslu hnetusmjörs frá ECO HealthyCo vegna myglueitursins aflatoxíns, sem greindist yfir mörkum. Umræddar vörur eru Peanut Butter Crunchy og Peanut Butter Creamy. Neytendur 30.9.2021 08:05
206 þúsund sótt ferðagjöfina sem rennur út á miðnætti Um 206 þúsund manns hafa nú sótt ferðagjöfina en hún rennur út á miðnætti. Handhafar ferðagjafarinnar eru í kringum 280 þúsund þannig að um 70 þúsund einstaklingar eiga eftir að sækja gjöfina. Neytendur 30.9.2021 06:29
Stytta opnunartíma Landsbankans en auka ráðgjafartíma Landsbankinn hefur ákveðið að stytta afgreiðslutíma útibúa um klukkustund og verða þau framvegis opin frá 10-16. Um leið lengist sá tími sem fjármálaráðgjöf er í boði símleiðis eða á fjarfundum til klukkan 18 alla daga. Neytendur 29.9.2021 13:51
Banna sölu á kertum sem brenna óeðlilega og geta valdið neistaflugi og eldstrókum Neytendastofa hefur bannað sölu og afhendingu á gylltum og rauðgylltum kertum frá framleiðandanum Premier Decorations Ltd. sem seld voru í verslunum Samkaup. Neytendur 29.9.2021 13:23