Skoðun

Verðbólgin heimili

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Hversu mörg heimili standa óvarin þegar stýrivextir eru hækkaðir? Ég leitaðist við að fá þessu svarað í haust þegar Seðlabanki kom á fund fjárlaganefndar með fyrirspurn um hversu stórt hlutfall heimila er með óverðtryggð lán á breytilögum vöxtum.

Skoðun

Fjár­festum í frið­sömum lausnum

René Biasone skrifar

Leiðarljós Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna er að sérhver einstaklingur sé borinn frjáls og jafn öðrum að virðingu og réttindum. Yfirlýsingin var undirrituð 10. desember 1948 eftir að mannkynið hafði kynnst hungri og stríði sem endaði með fjöldamorðum af völdum kjarnorkuvopna, stríði sem grundvallaðist á mannhatri og grimmd, grillunni um að sumt fólk væri æðra öðru líkt og helförin sýndi.

Skoðun

Sam­starf um stöðug­leika

Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar

Þegar ég bauð mig fram til Alþingis síðastliðið haust var það vegna þess að ég vildi gera vel. Ástandið í heiminum hefur haft áhrif á efnahagsástandið hér á landi sem og annar staðar. Við getum þó ornað okkur við það að allar líkur eru á að um tímabundið ástand sé að ræða, staða ríkissjóðs er mun sterkari en áður var gert ráð fyrir og viðsnúningur getur því orðið hraður þegar ástandið færist aftur í eðlilegt horf. Við þurfum þó að stíga varlega til jarðar næstu mánuði, tryggja stöðugleika og ná niður verðbólgu og vöxtum.

Skoðun

Af­hendingar­öryggi heits vatns

Ó. Ingi Tómasson skrifar

Í yfirstandandi kuldakasti flagga Veitur viðvörun um hugsanlegan skort á heitu vatni og væntanlegri lokun sundlauga. Á undanförnum árum hafa Veitur og fleiri aðilar bent á að hitaveitur víða um land séu komnar að þolmörkum og að á höfuðborgarsvæðinu er spáð að hitaveitueftirspurn gæti tvöfaldast á næstu 40 árum.

Skoðun

Sjálf­bærni á erindi við allar at­vinnu­greinar

Helgi Jóhann Björgvinsson,Anna Gerður Ófeigsdóttir og Jóna Rut Vignir skrifa

Umræða um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja hefur aukist á síðustu árum meðal annars vegna frétta af takmörkuðum árangri í baráttunni við loftslagsvandann á heimsvísu. Sjálfbærni er flókinn og síbreytilegur málaflokkur og á köflum torskilinn.

Skoðun

Okkur er ekki sama – saman gegn of­beldi

Halla Bergþóra Björnsdóttir skrifar

Undanfarið hefur mikið verið rætt um að ofbeldi sé að aukast í samfélaginu og það sé að verða alvarlegra. Vissulega höfum við hjá lögreglunni séð vísbendingar í þá átt en ofbeldi er ekki náttúrulögmál, við sem samfélag þurfum að snúa vörn í sókn. Áhrif ofbeldis á þann sem fyrir verður eru margvíslegar, afleiðingarnar geta verið bæði líkamlegar og sálrænar.

Skoðun

Búbblur og böl

Kristjana Björg Sveinsdóttir skrifar

Á undanförnum árum hafa viðburðir þar sem áfengi er haft um hönd færst í aukana og áfengir drykkir nú töluvert oftar í boði og einnig við fleiri tækifæri en áður tíðkaðist. Nýleg dæmi um slíka viðburði eru konukvöld í ýmsum verslunum þar sem boðið er upp á vín yfir gylliboðum, tilboðum og skemmtunum.

Skoðun

Tölvuleikjafíkn – þarf eitthvað að hafa áhyggjur?

Rannveig Borg Sigurðardóttir skrifar

Dómstólar í Canada munu á næstu mánuðum skera úr ágreiningi þarlendra foreldra við Epic Games, framleiðanda Fortnite tölvuleikjarins. Foreldrarnir stefndu fyrirtækinu á grundvelli þess að leikurinn væri ávanabindandi.

Skoðun

Ég og „heilsu­dýnan” mín

Gunnar Dan Wiium skrifar

Í átta ár svaf ég á dýnu sem var skilgreind fyrir mér sem heilsudýna. Hún kostaði rétt undir hálfri milljón og sjúklega montinn og ánægður kom ég henni fyrir í svefnloftinu sem ég var nýbúin að innrétta frá grunni í gamla húsinu okkar.

Skoðun

Kaldar kveðjur for­sætis­ráð­herra

Árni H. Kristjánsson skrifar

Nú liggja fyrir drög að frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til heildarlaga um sanngirnisbætur til vistheimilabarna sem urðu fyrir varanlegum líkamlegum, sálrænum eða félagslegum skaða vegna illrar meðferðar meðan á vistun þeirra stóð.

Skoðun

Lýðræðið er á förum

Einar G. Harðarson skrifar

Simpansar, nánasti ættingi okkar tegundar, notar svipaðar pólitískar aðferðir til að ná kosningu og við gerum í dag. Þeir mynda sambönd, skipta verðmætum og ná hylli hópsins. Þeir knúsa félagana og kyssa börnin. Það sem þeir geta ekki gert er að sameinast í mesta lagi 50 apa hópum, því traustið á milli þeirra byggist á nánum samböndum, og það er ekki hægt fyrir hóp Simpansa að halda utan um traust félagsbönd nema upp að þessu marki. Þetta virkar eins hjá okkur mannfólkinu, nema við getum að vísu þekkt og haldið utan um félagslegar upplýsingar um allt að 150 manns.

Skoðun

Sækjum fram á ó­vissu­tímum

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Kjarasamningar fyrir stærstan hluta launafólks á almennum vinnumarkaði hafa nú verið undirritaðir eftir að Starfsgreinasamband Íslands reið á vaðið í byrjun mánaðarins og verslunarmenn og samflot iðn- og tæknifólks fylgdi svo í kjölfarið gær. Þetta er mikilvægur áfangi fyrir fólkið í landinu, ekki síst á óvissutímum.

Skoðun

Fákeppni á leigumarkaði

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Afleiðingar þess að Íbúðalánasjóður hirti rúmlega fjögur þúsund íbúðir af almenningi og afhenti gróðafyrirtækjum hafa verið að koma í ljós æ síðan. Fólki sem er á miðjum aldri og eldra hefur stórfjölgað á leigumarkaði. Ástæða þess er einföld.

Skoðun

Kynferðisofbeldi verður ekki liðið

Jón Gunnarsson skrifar

Eitt af mínum fyrstu verkum sem dómsmálaráðherra var að fela ríkislögreglustjóra að leiða markvissar aðgerðir um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi.

Skoðun

Reykja­vík ný­frjáls­hyggjunnar

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Í síðustu viku komu borgarfulltrúar saman í borgarstjórn til þess að ræða fjárhagsáætlun fyrir næsta ár, 2023. Þarna höfðu kjörnir fulltrúar tækifæri til þess að sýna og segja borgarbúum hvernig þau hygðust vilja reka borgina. Hlutverk Reykjavíkur er að sjá til þess að það sé hér til grunnur fyrir alla.

Skoðun

(Sér)íslensk jólaljós á krepputímum

Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Jólaljósin í skammdeginu á Íslandi eru eitt af mörgu sem er í uppáhaldi hjá mér við jólin. Maðurinn minn fór án mín í jólaljósa-innkaup á dögunum og missti sig örlítið. Það verður í það minnsta enginn runni hjá okkur óupplýstur þetta árið.

Skoðun

Eldvarnir í dagsins önn

Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar

Senn gengur í garð hátíð ljóss og friðar og þá tendrum við gjarnan jólaljós og spreytum okkur í eldhúsinu. Oft er minnt á mikilvægi þess að eldvarnir séu í lagi í desember þegar við bætum í rafmagns- og kertanotkun en vissulega þurfa þær að vera í lagi allan ársins hring. Ekki síst þegar við horfum á breytta virkni heimila vegna áhrifa frá lífsstíl nútímafólks.

Skoðun

Stórt skref fyrir Vestmannaeyjar

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar

Þær fréttir bárust í dag að innviðaráðuneytið hefði náð samkomulagi við Flugfélagið Erni um áætlunarflug til Vestmannaeyja þrisvar sinnum í viku.

Skoðun

Tíminn og hafið

Gunnar Hnefill Örlygsson skrifar

Fyrir tíu árum þennan dag, var ég einn á heimleið norður í jólafrí. Í þann mund sem ég er að byrja að brölta upp Öxnadalsheiðina er mér allt í einu hugsað til frænda míns, að ég verði að hringja í hann þegar heim er komið.

Skoðun

Heilbrigðiskerfið sem fékk lítinn plástur

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Nýlega heyrðum við af uppsögn forstjóra Sjúkratrygginga. Hún treysti sér ekki til að sinna starfinu með þeim fjárveitingum sem Sjúkratryggingum er úthlutað. Í framhaldinu heyrðust síðan þau merkilegu viðbrögð heilbrigðisráðherra að uppsögnin hafi ekki komið honum á óvart.

Skoðun

Það er ekkert að því að fara í jóla­köttinn

Árni Páll Árnason skrifar

Nú líður að jólum, mögulega skemmtilegustu hátíð ársins þar sem fjölskyldur og vinir koma saman til að lýsa upp skammdegið og ylja sér í kuldanum. Jólin eru hátíð ljóss og friðar en á sama tíma eru jólin hátíð mikillar og – stundum – óþarfa neyslu.

Skoðun

Hvar er kjara­pakkinn, Katrín?

Kristrún Frostadóttir skrifar

Við sem viljum stjórna í þágu almennings gerum kröfu um framfarir. Í staðinn verðum við vitni að stjórnarháttum sem festa kerfin okkar enn frekar í hjólförunum. Stjórnarháttum sem fela í sér að neyð er sköpuð til þess eins að valdhafar geti hlaupið inn líkt og bjargvættir rétt fyrir jól til að stoppa í götin. Með þessum stjórnarháttum komumst við einfaldlega ekkert áfram.

Skoðun

Þarf alltaf að vera svín?

Harpa Kristbergsdóttir skrifar

Einu sinni á ferð minni um landið, eftir að hafa keyrt framhjá óteljandi hestum og kúm (og auðvitað sagt hestar! og beljur! upphátt í hvert sinn eins og lög segja til um) þá sá ég svín. Það var svo óvenjuleg sjón að það tók mig dágóða stund að þekkja dýrategundina.

Skoðun

Hvenær leiddist þér síðast?

Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir og Skúli Bragi Geirdal skrifa

Hvenær varst þú seinast á biðstofu og neyddist til að horfa út í loftið eða spjalla við einstaklinginn við hliðina á þér þar sem þú hafðir ekkert annað að gera?

Skoðun

Eru fjár­mál borgarinnar brandari?

Helgi Áss Grétarsson skrifar

„Helgi, sem frambjóðandi skaltu ekki tala um fjármál borgarinnar, það nennir enginn að pæla í þeim“, sagði einn kjósandi við mig skömmu fyrir borgarstjórnarkosningarnar sl. vor. Viðkomandi kom því einnig á framfæri að um leið og stjórnmálamenn á vettvangi borgarmálanna færu að útskýra muninn á A- og B-hluta samstæðu Reykjavíkurborgar, „hefði sú orðræða svipuð áhrif og sterk svefntafla“.

Skoðun

Hreyfi­aflið í opin­berum inn­kaupum

Harpa Júlíusdóttir og Hrund Gunnsteinsdóttir skrifa

Í opinberum innkaupum þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni (e.Sustainable Public Procurement) liggur gífurlega öflugt hreyfiafl í átt að sjálfbærum viðskiptum, nýsköpun og mannvirkjagerð. Víða erum við að sjá stór skref tekin í að nýta þau til að færa okkur nær sjálfbærni og úr línulegu hagkerfi yfir í hringrásarhagkerfið. Þarna þarf markvisst samstarf löggjafans, ríkis, sveitarfélaga og einkageirans.

Skoðun

Jólakveðja frá bæjarfulltrúum Framsóknar í Suðurnesjabæ

Anton Guðmundsson og Úrsúla María Guðjónsdóttir skrifa

Jólahátíðin nálgast enn á ný og allt sem henni fylgir. Íbúar og fyrirtæki skreyta hátt og lágt, jólatónlistin ómar, ungum sem öldnum fer að hlakka til að opna pakka og borða góðan mat með fjöldskyldu og vinum.

Skoðun

Gleðileg venjuleg jól!!!

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar

Ert þú kona sem hugsar oft: nú kem ég mér í mitt besta form? Ert viss um að þú verðir í þínu besta formi um jólin? Næsta sumar? Á stórafmælinu? Ég er svoleiðis kona!

Skoðun