Ert þú ekki bara pólitíkus? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar 5. janúar 2026 07:47 Ég er enginn pólitíkus, hef ég stundum heyrt fólk segja sem hefur brennandi áhuga á samfélagi sínu og hvernig því er stjórnað. Í grunninn þá snýst stjórnun sveitarfélags fyrst og fremst um að veita íbúum lögbundna þjónustu á sem bestan hátt og bera ábyrgð á skipulagsmálum og rekstri sveitarfélagsins. Þetta eru líka þeir þættir sem snerta daglegt líf fólks hvað mest og nauðsynlegt er að virki vel. Lögbundin þjónusta getur verið misgóð og sum sveitarfélög gera betur en önnur þegar kemur að útfærslu. Sama má segja um skipulagsmál. Fólk hefur á þeim sterkar skoðanir en oft er það aðeins of seint sem þær skoðanir koma fram, sérstaklega þegar sveitarfélög standa sig ekki nógu vel í að kynna það sem koma skal og gefa íbúum sveitarfélagsins aðkomu að skipulagsferlum, sem þeir eiga sannarlega lögbundinn rétt á að vel sé staðið að. Sveitarfélög eru sameign íbúanna sem þar búa. Svo sveitarstjórn er smá eins og stjórn húsfélags. Hún ber ábyrgð á sameiginlegum fjármunum, nýtingu þeirra og að skapa sem best skilyrði fyrir búsetu sem á sama tíma stuðla að lífsgæðum þeirra sem deila fasteigninni. Það er hægt að hafa áhrif Fyrir fjórum árum vorum við nokkrir vinir sem ákváðum að hætta að ræða um það sem betur mætti fara við stjórnun sveitarfélagsins okkar við eldhúsborðið og stofnuðum nýjan lista, Íbúalistann í Ölfusi. Við fengum til liðs við okkur gott fólk sem hafði sömu markmið og gáfum kost á kröftum okkar í sveitarstjórnarskosningum 2022. Við fórum af stað til þess að hafa áhrif og þrátt fyrir að hafa verið í minnihluta á þessu kjörtímabili höfum við sannarlega haft áhrif á sveitarfélagið okkar. Ég nefni þrjú dæmi: Við stóðum með íbúum þegar kom að því að kynna hvað raunverulega væri á bak við grjótmulningsverksmiðju Heidelberg sem átti að reisa ofan í fiskeldin í túnfæti Þorlákshafnar. Héldum íbúafund þar sem við fengum fulltrúa frá Hafrannsóknarstofnun og Landvernd ásamt því að draga saman upplýsingar og umsagnir ýmissa stofnana eins og Vegagerðarinnar úr skipulagsgögnum um þessa framkvæmd. Nokkuð sem sveitarfélagið sjálft hefði átt að gera og kynna fyrir íbúum, en eftirlét Heidelberg alfarið að kynna verkefnið á sínum forsendum. Niðurstaðan var að íbúar höfnuðu verkefninu í íbúakosningu með afgerandi hætti. Við vorum eini flokkurinn með stofnun grænna iðngarða á stefnuskrá, eitthvað sem meirihlutanum sem skipaður er Sjálfstæðismönnum þótti greinilega góð hugmynd og keyrði áfram. Við kölluðum eftir því allt kjörtímabilið að unnin yrði atvinnustefna sem hafði fallið úr gildi fyrir nokkrum árum. Það hafðist loks um miðjan desember síðastliðinn að klára atvinnustefnuna, en alveg án aðkomu íbúa ef frá er talin gölluð íbúakönnun með örfáum svörum, sem vantaði að kynna miklu betur. Það er nefnilega vel hægt að hafa áhrif sem kjörinn fulltrúi hvort sem maður starfar í minni- eða meirihluta. Best er auðvitað ef samstarf á milli flokka gengur vel og að allir vinni saman að markmiðum sem flest eru þess eðlis þegar á botninn er hvolft að allir eru sammála um. Samstarf þvert á flokka gengur mjög vel í mörgum sveitarfélögum og aðkoma minnihluta er víða meiri en ég upplifði í Ölfusi. Það lærði ég í samtölum mínum við aðra sveitarstjórnarfulltrúa, til dæmis í gegnum öflugt samstarf Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sem er mjög dýrmætt. Á éééég að gera það? Nú þegar flest framboð eru farin af stað að undirbúa komandi sveitarstjórnarkosningar þá vil ég hvetja ykkur öll sem látið hag sveitarfélagsins ykkur varða að hugleiða hvort möguleiki sé fyrir þig að bjóða fram þína krafta í þágu samfélagsins. Ef svarið við því er að það komi til greina þá er um að gera að fara á stúfana og hafa samband við framboð, eða hreinlega stofna nýtt. Nú sit ég ekki lengur í bæjarstjórn Ölfuss fyrir hönd Íbúalistans heldur á Alþingi fyrir hönd Samfylkingarinnar. Um land allt er ótrúlega öflugt Samfylkingarfólk farið af stað og víða er mikill hugur í fólki. Það sama má segja um okkur í Ölfusi og ætlum við sem stöndum að Íbúalistanum að bjóða fram lista í nafni Samfylkingarinnar í samstarfi við fólk úr öðrum flokkum og óháðum. Fyrir hönd Íbúalistans færi ég þakkir til þeirra sem hafa stutt við framboðið síðustu ár. Samfylkingin stendur fyrir opnum fundi þriðjudaginn 13. janúar kl. 20 í Versölum þar sem við tökum á móti fólki sem vill gefa kost á sínum kröftum eða einfaldlega sýna stuðning sinn í verki með því að sýna sig. Við ætlum að eiga spjall um sameiginlegt áhugamál okkar allra, hvernig við búum til betra samfélag. Verið hjartanlega velkomin. Ef þú sem þetta lest vilt gefa kost á þér fyrir Samfylkinguna ýmist í Ölfusi eða annars staðar í Suðurkjördæmi máttu gjarnan senda mér línu og ég vísa þér áleiðis. Höfundur er þingkona Samfylkingar í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ölfus Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun