Tónlist

Kammermúsíkkúbburinn í kröggum
Meðan kvikmyndin Fullt hús gengur fyrir ... fullu húsi, en þar er fjallað um kammersveit sem sér sæng sína uppreidda vegna þess að borgin hættir að styrkja hana, er Kammermúsíkklúbburinn í nákvæmlega þeirri sömu stöðu.

„Hef algjörlega minn eigin stíl og tek engan til fyrirmyndar“
„Ég er einungis original en fæst ekki við hermi-tónlist,“ segir tónlistarmaðurinn Hjörtur Geirsson sem er nú að endurútgefa plötuna sína The Flow frá árinu 2007.

Nærmynd af Idol þríeykinu: „Við erum öll búin að sigra“
Spennan magnast í Idolinu og eftir standa þrír. Næstkomandi föstudagskvöld nær spennustigið svo hámarki þegar lokaþáttur Idolsins verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 og í ljós kemur hver stendur uppi sem sigurvegari. Anna Fanney, Björgvin Þór og Jóna Margrét keppast um sigurinn en Lífið á Vísi fékk að kynnast þeim örlítið nánar.

„Hollt að horfast í augu við gömul sár“
„Ég held að það sé svo margt erfitt sem maður upplifir sem er miklu þægilegra að reyna að gleyma bara eða láta eins og hafi ekki haft áhrif á mann,“ segir tónlistarkonan Hildur Kristín sem var að senda frá sér lagið Þúsund skyssur ásamt tónlistarmyndbandi.

Laufey spilaði á selló með Billy Joel
Grammy verðlaunahafinn Laufey Lín endaði ævintýralegt kvöld sitt á hátíðinni í gær með því að spila á sviði með Billy Joel.

„Hér er maður berskjaldaðri og viðkvæmari“
„Það er þægilegt að geta klætt sig í búning, verið með ólar, klippt á sig mullet og þóst vera einhver klámstrákur því þá veit maður að maður er í raun í leikriti að einhverju leyti. Hér er maður berskjaldaðri og í raun viðkvæmari,“ segir listamaðurinn Klemens Hannigan sem er hvað þekktastur sem meðlimur Hatara. Hann var að gefa út sína fyrstu sólóplötu, Low Light, og frumsýnir sömuleiðis hér tónlistarmyndband við lagið Someone Else.

„Það er eins og ég hafi séð fyrir að hann myndi deyja“
„Ég er búin að upplifa ýmis áföll á lífsleiðinni þannig að ég hef svolítið neyðst til að fara í sjálfsvinnu og sjálfsskoðun, byggja mig upp og svona. Svo samtvinnast það tónlistinni þar sem ég nota tónlistina í þessa sjálfsvinnu,“ segir tónlistarkonan Vala Sigríður Guðmundsdóttir Yates.

Íslensk djöflarokksplata seldist á 600 þúsund krónur
Athygli var vakin á því á samfélagsmiðlum nýverið að í desember hafi vínyleintak af plötunni Fire and Steel með íslensku djöflarokkssveitinni Flames of Hell selst á 4.175 dollara á vínylplötuvefsíðunni Discogs, en það nemur um 570 þúsund íslenskum krónum.

Íslandi nú spáð þriðja sæti í Eurovision
Íslandi er nú spáð þriðja sæti í Eurovision, sem fer fram í Malmö í Svíþjóð 7. til 9. maí næstakomandi. Það er stökk úr 18. sæti frá því í gær og má rekja stökkið til frétta af því að hinn palestínski Bashar Murad taki þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins.

Palestínumaðurinn Bashar Murad keppir í Söngvakeppninni
Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad mun keppa í Söngvakeppni sjónvarpsins. Murad er landsmönnum kunnugur en hann gaf út lag með hljómsveitinni Hatara, eftir Eurovision ævintýri sveitarinnar í Tel Aviv árið 2019.

Grunar að palestínskur söngvari keppi í Söngvakeppninni
Tónlistarkonuna Ágústu Evu Erlendsdóttur grunar að palestínskur tónlistarmaður taki þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins í ár. Það sé ástæða þess að Ríkisútvarpið ætli ekki að taka ákvörðun um þátttöku í Eurovision fyrr en niðurstöður Söngvakeppninnar liggja fyrir. Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad hefur verið nefndur sem keppandi.

„Smá gluggi inn í sálarlífið mitt“
„Ég held að ég leyfi mér hér að vera enn berskjaldaðri en áður,“ segir tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson um nýja tónlist sem hann var að gefa út. Tæplega fimmtán ár eru liðin frá því að hann sendi frá sér sitt fyrsta lag, Hlið við hlið, og hefur honum tekist að syngja sig aftur og aftur inn í hjörtu þjóðarinnar.

Gefur út nýja tónlist í fyrsta sinn í sex ár
Tónlistarmaðurinn Justin Timberlake frumflutti á dögunum nýtt lag og stefnir í að gefa út fyrstu nýju plötuna í sex ár. Lagið heitir Selfish og flutti hann það á tónleikum í Memphis í Bandaríkjunum á föstudagskvöldið.

„Eins og ég sé að dansa sársaukann frá mér“
„Ég verð eiginlega ótrúlega lítið stressuð fyrir gigg og er meira bara spennt,“ segir tónlistarkonan Guðlaug Sóley, betur þekkt sem Gugusar. Hún er að fara að spila á bransahátíðinni Eurosonic í Groningen, Hollandi í vikunni ásamt því að troða upp á háhýsaklúbbi í Amsterdam. Blaðamaður ræddi við Gugusar, sem var sömuleiðis að senda frá sér lagið Ekkert gerðist.

Ásdís og Grammy-verðlaunahafinn Purple Disco Machine í eina sæng
„Ég hef bara aldrei áður tekið þátt í neinu svona stóru,“ segir tónlistarkonan Ásdís María Viðarsdóttir. Hún hefur unnið með fjöldanum öllum af tónlistarmönnum en nýjasta samstarfsverkefni hennar er við Grammy verðlaunahafann Purple Disco Machine.

Valdimar og stórsveit Reykjavíkur bjóða upp á sveifluveislu
Árlegir nýárstónleikar Stórsveitar Reykjavíkur eru á dagskrá í Hörpu í kvöld. Tónleikarnir verða helgaðir swingtímabilinu og sveitin fær til sín góða gesti.

Þetta eru lög ársins á Bylgjunni
Bylgjan hefur tekið saman lista yfir vinsælustu lög stöðvarinnar árið 2023. Listinn er valinn út frá öllum Bylgjulistum ársins.

Vinsælustu lögin á FM957 árið 2023
Á þessum síðasta degi ársins er vert að fara yfir árið í tónlistarheiminum en útvarpsstöðin FM957 kynnti fyrr í dag vinsælustu lög ársins 2023.

Jarðtenging um jólin eftir tónleikaferðalag um Evrópu
„Við gerðum þetta lag svolítið óvænt. Við hittumst einn daginn, settumst niður og prófuðum að gera eitthvað saman,“ segir tónlistarkonan Árný Margrét um lagið Part of Me sem hún og Ásgeir Trausti voru að senda frá sér.

Sveið í augun í marga daga eftir froðudiskó
„Í skammdeginu er nauðsynlegt að minna sig á að við erum öll bara einni sápukúluvél frá góðu froðudiskóteki,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Frímannsson. Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi hljómsveitar hans Jónfrí við lagið Andalúsía.

Verðlaunaplötur úr ýmsum áttum
Kraumsverðlaunin voru afhent á Kex í gærkvöldi og í sextánda sinn. Að þessu sinni voru það þau Apex Anima, Elín Hall, Eva808, Neonme, Spacestation og ex.girls sem hlutu verðlaunin, sem veit eru fyrir þær hljómplötur sem þykja skara fram úr á Íslandi.

Vaknaði oftar en einu sinni í steininum á aðfangadag
Fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson er mikið jólabarn en hann stendur fyrir viðburðinum Snorri Ásmundsson og Jólagestir í Þjóðleikhúskjallaranum næstkomandi þriðjudagskvöld.

Blöndal og Gröndal í Fitzgerald-jólaham
Rebekka Blöndal og Ragnheiður Gröndal koma fram saman á jólaháskólatónleikum á stað og í streymi á morgun.

Boðskapur jólaplötu Mariuh Carey eigi sjaldan betur við en nú
Kristján Hrannar Pálsson, organista og kórstjóra Grindavíkurkirkju, rak í rogastans þegar hann áttaði sig á dýpt jólaplötu tónlistarkonunnar Mariah Carey. Platan verður flutt á söfnunartónleikum fyrir fjölskyldur úr Grindavík sem haldnir verða næstkomandi miðvikudagskvöld í Bústaðakirkju.

Vildu gera alvöru partýlag fyrir jólin
Rapparinn Emmsjé Gauti er kominn í partýgírinn fyrir jólin en hann var að senda frá sér lagið Partýjól ásamt Steinda Jr. og Þormóði. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.

Bylgjan órafmögnuð: Jónas Sig keyrir upp stuðið
Jónas Sig er sjötti söngvarinn sem stígur á svið í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem er á dagskrá á Bylgjunni og Stöð 2 Vísi á fimmtudagskvöldum.

Jólahátíðin okkar snýr aftur
Jólahátíðin okkar, jólahátíð fyrir fatlaða, snýr aftur í kvöld. Hátíðin hefur verið haldin árlega í rúma fjóra áratugi en pása var gerð á henni undanfarin ár vegna faraldurs Covid.

Leikstýrði tónlistarmyndbandi við lag pabba síns
Vísir frumsýnir í dag nýtt tónlistarmyndband við lagið Sérhver jól með þér. Lagið er nýjasta afurð hljómsveitarinnar Löðurs.

Laufey tekur fram úr Björk
Tónlistarkonan Laufey hefur tekið fram úr Björk sem vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn á Instagram. Laufey er nú með rétt rúmlega tvær milljónir fylgjenda en Björk er með 1,97 milljónir.

„Sumt mun kannski sjokkera fólk“
Hinn 22 ára gamli Jóhann Ágúst Ólafsson var að senda frá sér sitt fyrsta lag, „Kallinn á tunglinu“. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.