Viðskipti
163 164 165 166 167 168 169 170 171 … 334 ›
Falur körfuboltamaður til Advania Falur Harðarson hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður rafrænna viðskipta og skólalausna hjá Advania. Hann kemur frá Samkaupum þar sem hann hefur starfað í þrettán ár, fyrst sem mannauðsstjóri og frá 2018 sem forstöðumaður rekstrar- og mönnunardeildar. Viðskipti innlent 9.8.2022 10:14
Ísflix-menn hættu við 200 milljóna fjárfestingu Draumurinn um íslensku efnisveituna Ísflix, sem upphaflega átti að ýta úr vör árið 2019, er úti. Fjölmiðlamennirnir Ingvi Hrafn Jónsson og Jón Kristinn Snæhólm voru hvatamenn að verkefninu og sögðu það borgaralega efnisveitu sem væri „svona aðeins til hægri“ á hinu pólitíska rófi. Viðskipti innlent 9.8.2022 07:01
Lífeyrissjóðir landsmanna dregist saman um tæplega 400 milljarða króna Á fyrri helmingi árs hafa eignir íslenskra lífeyrissjóða dregist saman um 361 milljarð króna. Viðskipti innlent 8.8.2022 14:04
Vöruskipti óhagstæð um 31 milljarð í júlí Hagstofan var að gefa út bráðabirgðatölur um vöruskipti og samkvæmt þeim eru þau óhagstæð um sem nemur 31 milljarð króna. Atvinnulíf 8.8.2022 12:58
Play flutti fleiri í júlí en allt árið 2021 Flugfélagið Play flutti 109.937 í júlí sem er fjórðungsaukning frá farþegafjölda í júní. Fjöldi farþega í júlí 2022 er meiri en samanlagður fjöldi allra farþega sem Play flutti á árinu 2021. Viðskipti innlent 8.8.2022 10:26
Farþegar Icelandair yfir hálfa milljón í fyrsta sinn frá upphafi faraldurs Icelandair flutti yfir hálfa milljón farþega í millilandaflugi í nýliðnum júlí. Fjöldi farþega hefur ekki farið yfir hálfa milljón síðan á háannatíma árið 2019 áður en áhrifa heimsfararaldurs kórónuveiru fór að gæta í flugrekstri. Viðskipti innlent 8.8.2022 09:58
Archer kaupir helming í Jarðborunum Alþjóðlega bor- og þjónustufyrirtækið Archer Ltd. hefur keypt 50% hlutafjár í Jarðborunum hf. fyrir 8,25 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 1,13 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 8.8.2022 09:02
Sjálfhverfi vinnufélaginn tekur á taugarnar Það getur tekið á taugarnar að vinna náið með sjálfhverfu fólki. Atvinnulíf 8.8.2022 07:00
Vörur Örnu í Bolungarvík til Bandaríkjanna Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík gerir það nú gott því útflutningur á vörum fyrirtækisins til Bandaríkjanna er hafinn á fullum krafti. Um er að ræða skyr og gríska jógúrt til að byrja með. Viðskipti innlent 7.8.2022 13:32
Segir síðasta ár hafa verið gott fyrir álverin en þetta ár verði enn betra Rekstur áliðnaðarins hérlendis hefur aldrei gengið eins vel og nú. Þrátt fyrir að verð á áli hafi á síðustu vikum sigið niður spáir forstjóri stærsta álversins, Alcoa Fjarðaáls, því að þetta ár verði ennþá betra en það síðasta. Viðskipti innlent 6.8.2022 22:10
Fjárfestingafélag Warren Buffett tapaði sex þúsund milljörðum króna Berkshire Hathaway, fjárfestingafélag rekið af milljarðamæringnum Warren Buffett, tapaði 43,8 milljörðum dollara á öðrum ársfjórðungi, rúmum sex þúsund milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 6.8.2022 16:20
Fólk er miklu hjálpsamara en við höldum Við skulum byrja á því að vera alveg hreinskilin: Biðjum við alltaf um hjálp þegar að við þurfum þess? Eða reynum við að redda okkur sjálf og biðjum ekki um hjálp fyrr en við erum komin í strand? Atvinnulíf 5.8.2022 08:00
Áskorun að mæta aukinni eftirspurn vegna eldgossins Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir gífurlega landkynningu felast í þeim myndbirtingum og þeirri fjölmiðlaumfjöllun sem gosið hafi fengið í stórum fréttamiðlum um allan heim. Það hafi sýnt sig vel í síðasta gosi að slík kynning sé gríðarlega verðmæt fyrir Ísland sem áfangastað. Viðskipti innlent 5.8.2022 08:00
„Klikkað að gera“ eftir að gosið hófst Ferðaþjónustufyrirtæki eru þegar farin að finna fyrir auknum þunga í bókunartölum vegna eldgossins í Meradölum. Framkvæmdastjóri þyrlufyrirtækis segir erlenda ferðamenn treysta á að gosið endist inn í haustið. Bókanir teygi sig inn í nóvember. Viðskipti innlent 4.8.2022 23:00
Stjórn Sýnar boðar til hluthafafundar Stjórn Sýnar hefur boðað til hluthafafundar að kröfu Gavia Invest ehf, sem nýlega keypti stóran hlut í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 4.8.2022 15:36
DeWALT trukkurinn í fyrsta sinn á Íslandi DeWALT Yellow Deamon verkfæratrukkur með tengivagn er nú á ferðinni um landið. Trukkurinn er troðfullur af verkfærum sem hægt er að skoða og prófa og fá ráðgjöf sérfræðinga. Keppt verður um titilinn Skrúfumeistari Íslands og boðið upp á hamborgara. Trukkurinn verður staddur á Reyðarfirði á morgun, föstudag. Samstarf 4.8.2022 14:12
Frostaskjól selur félagi Rannveigar og Hilmars allt sitt í Sýn Frostaskjól ehf. hefur selt Fasta ehf. 3,35 prósent hlut sinn í Sýn auk 4,35 prósent hluta sem félagið átti í framvirkum samningum. Fasti er í eigu helmingseigenda Frostaskjóls en Róbert Wessmann á hinn helminginn. Viðskipti innlent 4.8.2022 11:33
Félag Reynis á rúmlega helmingshlut í Gavia Infocapital ehf., fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar á ríflega helmingshlut í nýstofnaða fjárfestingarfélaginu Gavia Invest, sem keypti á dögunum stóran hlut í Sýn. Viðskipti innlent 4.8.2022 10:15
Hafa ekki áhyggjur af því að fasteignamarkaðurinn taki dýfu Svo virðist sem aðgerðir til að kæla fasteignamarkaðinn séu byrjaðar að hafa áhrif en vonir eru bundnar við að jafnvægi náist á markaðinum um mitt næsta ár, þó verðbólga verði líklega áfram mikil út 2024. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir ólíklegt að verðlækkanir séu í kortunum, þó að dæmi séu um slíkt erlendis, og hafa greiningaraðilar ekki áhyggjur af því að bóla sé að myndast á markaðinum. Viðskipti innlent 4.8.2022 07:01
Ekki megi falla í freistni og lofa meiru en Ísland geti staðið undir Verðbólga einkennir nú öll hagkerfi heimsins og er Ísland þar engin undantekning að sögn prófessors í hagfræði. Seðlabankastjóri hefur boðað aðgerðir en verkalýðshreyfingin stendur föst á sínu fyrir komandi kjaraviðræður. Vernda þurfi viðkvæmasta hópinn en þó sé ekki mikið svigrúm fyrir launahækkanir í óvissunni sem fram undan er. Viðskipti innlent 3.8.2022 21:35
Ragnheiður til Keahótela Ragnheiður Hauksdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs hjá Keahótelum ehf. Viðskipti innlent 3.8.2022 16:12
Egill til Arctic Green Energy Egill Júlíusson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Arctic Green Energy á Íslandi. Hann kemur til félagsins frá Landsvirkjun. Viðskipti innlent 3.8.2022 16:07
Jón Mikael ráðinn framkvæmdastjóri notendalausna Origo Jón Mikael Jónasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri notendalausna hjá Origo og mun hefja störf í byrjun næsta mánaðar. Hann kemur frá Ölgerðinni þar sem hann hefur starfað síðustu tuttugu ár. Viðskipti innlent 3.8.2022 10:26
Sjö prósent hækkun á íslenska markaðnum í júlí Íslenski hlutabréfamarkaðurinn hækkaði um sjö prósent í júlí eftir kröftugar lækkanir í júní. Af þeim 22 félögum sem skráð eru á aðallista kauphallarinnar voru nítján sem hækkuðu í verði en þrjú félög lækkuðu. Viðskipti innlent 3.8.2022 10:07
Staðreynd að margt starfsfólk upplifir þunglyndi eftir sumarfrí Rannsóknir hafa sýnt að fólk er mun ánægðara áður en það fer í frí í samanburði við þegar fríinu lýkur. Sem gæti hljómað skringilega því það er einmitt eftir frí sem við eigum að vera svo úthvíld og endurnærð. Atvinnulíf 3.8.2022 08:01
Ný bortækni gæti valdið byltingu í jarðgangagerð Ný aðferð í jarðgangagerð sem felst í að nota plasma-ljósboga til að mölva sér leið í gegnum berg vekur vonir um að jafnvel villtustu draumar margra á Íslandi um veggöng gætu ræst. Fullyrt er að með þessari tækni megi grafa göng margfalt hraðar og margfalt ódýrar en með núverandi tækni og með mun minni umhverfisáhrifum. Viðskipti erlent 2.8.2022 15:36
Kröfur upp á tæpa 22 milljarða í þrotabú þriggja félaga tengdum Primera Skiptum á þremur félögum tengdum flugfélaginu Primera Air lauk þann 22. júlí síðastliðinn. Samtals voru kröfur upp á rúma 22 milljarða í félögin Primera Air ehf., PTG hf. og PI ehf. Viðskipti innlent 2.8.2022 14:50
Deila Íslands og Iceland Foods brýtur blað Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur fyrirskipað að haldinn verði munnlegur málflutningur í deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland. Deilan brýtur blað í sögu hinnar fjölskipuðu áfrýjunarnefndar þar sem þetta verður í fyrsta sinn sem nefndin hlýðir á munnlegan málflutning í áfrýjunarmáli. Viðskipti innlent 2.8.2022 14:05
Pálmi Guðmundsson hættur hjá Símanum Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri Símans, er hættur hjá fyrirtækinu eftir sjö ára starf. Hann sagði upp að eigin ósk á fimmtudag og hefur ekki gefið frekari skýringar á uppsögninni. Viðskipti innlent 2.8.2022 13:29
Stækka Glerártorg og bæta við mathöll Áform eru uppi um stækkun Glerártorgs sem mun þá innihalda 500 fermetra mathöll. Stefnt er að endurskipulagningu verslunarmiðstöðvarinnar og fjölgun bílastæða. Viðskipti innlent 31.7.2022 15:27