Viðskipti

Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt
Stjórnendur Boeing hafa samþykkt að játa sök og greiða 243 milljónir dala, jafnvirði tæpra 34 milljarða króna, í sekt vegna brota fyrirtækisins á samkomulagi við yfirvöld.

Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samið við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.

KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska
Kaupfélag Skagfirðinga hefur fest kaup á hlut Kjarnafæðisbræðra, þeirra Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, og Búsældar ehf. í Kjarnafæði Norðlenska.

Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan
Kerecis hlaut nýverið 24 milljóna styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs í alþjóðlegt samstarfsverkefni sem snýr að því að bæta meðferð brunasára í Afganistan. Kerecis framleiðir roð til sáragræðinga en brunasár eru afar algeng í þeim heimshluta. Forstjóri segir mikilvægt að varan sé ekki einungis aðgengileg í vestrænum heimi.

„Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“
„Það má segja að bankahrunið hafi gefið mér þá hugmynd. Ég lá yfir öllum fréttasíðum og las allt sem ég gat um hrunið. Hagfræðin gaf mér tækifæri til að skilja betur hvernig fjármálakerfið gat umturnað heilu þjóðfélagi,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, þegar hann útskýrir hvers vegna hann fór í meistaranám í fjármálahagfræði í Oxford í Bretlandi.

Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir skaðabótamál fyrrverandi eigenda Brúneggja á hendur Ríkisútvarpinu og Matvælastofnun. Málið varðar umfjöllun Kastljóss 28. nóvember 2016 um dýrahald og eggjaframleiðslu Brúneggja ehf.

Úr boltanum í tryggingarnar
Bjarni Guðjónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS. Hann kemur til félagsins frá KR þar sem hann hefur verið framkvæmdastjóri undanfarin þrjú ár.

Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi
Ölgerðin hefur ráðið Ernu Hrund Hermannsdóttur verkefnastýru útflutnings á virknidrykknum Collab og sölustjóra Collab á Norðurlöndunum. Ölgerðin reiknar með því að tapa þrjú hundruð milljónum króna á útflutningi Collab á árinu.

Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans
Námafyrirtækið Amaroq Minerals Ltd. hefur ráðið Ellert Arnarson sem fjármálastjóra félagsins og hann hefur störf í ágúst.

Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On
Veitinga- og athafnamaðurinn Quang Lé virðist hafa eignast krúnudjásnin í viðskiptaveldi sínu fyrir lánsfé og loforð sem lítil innistaða var fyrir. Þannig eignaðist hann Herkastalann fyrir aðeins sextíu milljóna króna útborgun og Wok On fyrir loforð um greiðslu síðar.

Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður
Við eigum okkur öll okkar daga eins og sagt er. Stundum er dagsformið frábært og við í okkar besta gír. En síðan geta komið dagar sem eru okkur erfiðari.

Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg
Haraldur Benediktsson segir gjaldþrot Skagans 3X sem sagði upp öllum 128 starfsmönnum sínum í morgun vera mikið áfall, ekki bara fyrir bæinn heldur íslenskan sjávarútveg í heild sinni.

Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota
Öllum 128 starfsmönnum Skagans 3x var sagt upp í dag. Skaginn 3x er hátæknifyrirtæki sem framleiðir tæki fyrir matvælaframleiðslu aðallega í sjávarútvegi. Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness, segir ekkert sveitarfélag hafa orðið fyrir jafnmiklum hamförum í atvinnumálum undanfarið, að Grindvíkingum undanskildum.

Syndis ræður reyndan tölvuþrjót
Netöryggisfyrirtækið Syndis hefur ráðið til starfa sænskan hakkara að nafni David Jacoby, einn reynslumesta sérfræðing Svíþjóðar í netöryggi.

Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hafi brotið gegn ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Margvíslegar athugasemdir eru gerðar við starfshætti í tengslum við áhættumat bankans, áreiðanleikakannanir og rekjanleika í upplýsingakerfum.

Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða
Gjaldþrot vinnuvélafyrirtækisins Jötunn véla á Selfossi sem varð gjaldþrota árið 2020 nam rúmum 1660 milljónum króna. Samþykktar kröfur námu 426 milljónum króna en ekkert fékkst greitt upp í almennar kröfur.

Reitir hrista upp í skipuritinu
Reitir fasteignafélag hefur innleitt nýtt skipurit sem felur í sér að tveir framkvæmdastjórar kveðja félagið og aðrir hækka í tign eða færa sig um set. Þá kemur liðsstyrkur frá HS Orku.

Ætlaði með allt of ungt barn í ferð og heimtaði endurgreiðslu
Ferðaþjónustufyrirtæki hefur lúffað fyrir kaupanda sem fór fram á endurgreiðslu gjalds fyrir fimm ára gamalt barn og föður þess, eftir að barninu var neitað um aðgang að ferð. Aldurstakmark í ferðina var átta ár en barnið var aðeins fimm ára.

Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll
Ný verslun Nettó opnar steinsnar frá Keflavíkurflugvelli. Í síðustu viku var fyrsta skóflustunga tekin við Aðaltorg í Reykjanesbæ. Verslunin verður 1400 fermetrar og að sögn Samkaupa, eigenda Nettó, verður hún öll hin glæsilegasta.

Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi
Yfir sextíu golfvelli er að finna á Íslandi. Í sumar ætlum við að kynna okkur nokkra þeirra sem spennandi væri að prófa í sumar. Golfvöllur vikunnar er Kiðjaberg.

Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda
Kaupandi pakkaferðar hjá íslenskri ferðaskrifstofu fær ferðina alla endurgreidda þrátt fyrir að hafa afbókað hana með skömmum fyrirvara. Kaupandinn lét ekki bjóða sér venjuleg sæti í flugi og Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa taldi hann mega afpanta vegna þess.

Gefa út afkomuspá eftir allt saman
Stjórn Sýnar hefur ákveðið að gefa út afkomuspá fyrir árið 2024 en ákveðið var samhliða útgáfu ársreiknings félagsins í febrúar að gera það ekki. Það var meðal vegna óvissu um framtíðareignarhald vefmiðla og útvarpsstöðva, sem nú hefur verið eytt. Spáin gerir ráð fyrir rekstrarhagnaði upp á um einn milljarð króna.

Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“
„Það sem mér finnst þessi hópur stjórnenda eiga sameiginlegt, er að þetta eru stjórnendur sem segja má að tilheyri nýja skólanum í viðskiptalífinu,“ segir Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta um nýjan 40/40 listann, sem birtur var á dögunum.

96 sagt upp í hópuppsögnum í júní
Vinnumálastofnun bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í júní. 96 starfsmönnum var sagt upp störfum í farþegaflutningum og fiskvinnslu.

Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis
Sumarsýning Veltis verður haldin í Hádegismóum 8 fimmtudaginn 4. júlí milli kl. 17-19.

Tekur við fjármálunum hjá Securitas
Einar Pétursson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Securitas. Einar starfaði áður við fyrirtækjaráðgjöf hjá Landsbankanum.

Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst
Einhver bið er eftir því að Hagkaup hefji netsölu á áfengi. Fyrirhugað var að hægt yrði að panta áfengi og sækja hjá verslunarrisanum í síðasta mánuði. Framkvæmdastjórinn segir undirbúning á síðustu metrunum, en pappírsvinna og sumarfrí verði til þess að ekkert verði af sölunni fyrr en í ágúst.

Karen Ýr ráðin gæðastjóri
Karen Ýr Jóelsdóttir hefur tekið við starfi gæðastjóra Ölgerðarinnar og dótturfélaga þess. Hún tekur við starfinu af Guðna Þór Sigurjónssyni, sem nýverið var ráðinn forstöðumaður vaxtar og þróunardeildar félagsins.

Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar
Hagfræðideild Landsbankans segir það hugsanlegt að Seðlabankinn hefji vaxtalækkunarferli í október eða nóvember. Það fari allt eftir því hvenær verðbólga og verðbólguvæntingar benda til frekari hjöðnunar.

Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is
Samgöngustofa hefur tengst stafrænu pósthólfi á Ísland.is og nýtir nú pósthólfið til að minna eigendur ökutækja á skoðunartíma ökutækisins. Í tilkynningu frá Samgöngustofu segir að með því að tengjast pósthólfinu voni þau að þeim gefist kostur á aukinni skilvirkni og betri þjónustu við viðskiptavini.