Erlent

Bush með forskot en Kerry sækir á

George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur naumt forskot á helsta keppinaut sinn, John Kerry, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sjónvarpsstöðvarinnar CBS og dagblaðsins Wall Street Journal. Samkvæmt könnuninni kysu 48 prósent Bush, 45 prósent Kerry og tvö prósent óháða frambjóðandann Ralph Nader. Skekkjumörk könnunarinnar eru þrjú prósent og því er forskot Bush innan skekkjumarka. Fimm prósent þátttakenda höfðu ekki gert upp hug sinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×