Erlent

Veðjað á Hillary sem næsta forseta

Breskir veðbankar eru farnir að taka við veðmálum um hver verði kosinn forseti Bandaríkjanna eftir fjögur ár. Hvort tveggja Ladbrokes og William Hill telja mestar líkur á að Hillary Clinton, öldungadeildarþingmaður í New York og fyrrum forsetafrú, standi uppi sem sigurvegari. Aðrir sem taldir eru líklegastir eru repúblikaninn Rudolph Giuliani, fyrrum borgarstjóri í New York, og demókratinn John Edwards, varaforsetaefni Johns Kerry í nýafstöðnum forsetakosningum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×