Innlent

Slasaðist lítillega í bílveltu

Farþegi slasaðist lítillega þegar bíll valt á Suðurlandsvegi austan við Selfoss í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum og var sá sem meiddist farþegi. Báðir voru í bílbelti. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaðurinn hafi verið kominn of langt út í hægri vegkantinn og því sveigt snögglega til vinstri með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af þeim megin og hafnaði á hliðinni í skurði. Bíllinn er nokkuð skemmdur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×