Innlent

Hass og hraðakstur

Upp komu tvö fíkniefnamál um helgina á Sauðárkróki. Lögregla fann við reglubundið eftirlit með ökumönnum, annars vegar áhöld til neyslu efna og hins vegar lítilræði af tóbaksblönduðu hassi. Lögreglan á Sauðárkróki vildi láta þess getið að málin tengdust ekki vélhjólahátíðinni sem fram fór í bænum um helgina, en hjá lögreglu var mikil ánægja með mótið, sem fór vel fram. Þá stöðvaði lögreglan á Sauðárkróki 19 ökumenn fyrir of hraðan akstur um helgina. Lögregla segir umferð hafa verið mikla, en gengið nokkuð vel.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×