Innlent

Mannslát og grunur um nauðganir

Grunur leikur á að unglingsstúlku hafi verið nauðgað í Ólafsvík í nótt eftir að hafa verið byrlað ólyfjan. Karlmaður er í haldi lögreglunnar á Höfn í Hornafirði grunaður um aðra nauðgun. Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í Ketillaugarfjalli við Höfn í dag. Ekki er vitað hvað varð honum að aldurtila. Maðurinn, sem var á sextugsaldri, var heimamaður en hann fannst síðdegis. Hann hafði fallið fram af brún en ekki er vitað hvort það varð honum að bana eða hvort hann hafi fengið aðsvif og þess vegna fallið. Tilkynnt var um nauðgunina á Höfn í morgun. Í kjölfarið handtók lögreglan karlmann sem grunaður er um verknaðinn og er hann nú haldi lögreglunnar. Þá kom upp fíkinefnamál í bænum í nótt við reglubundið eftirlit lögreglu. Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á Höfn vegna Humarhátíðar sem þar stendur nú yfir en fyrir utan það sem nefnt var að framan hefur allt gengið vel fyrir sig. Grunur leikur á að fimmtán ára stúlku hafi verið nauðgað í Ólafsvík í nótt eftir að henni var byrluð ólyfjan. Hún var fyrst flutt á heilsugæslustöðina en síðan á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisbrota á Landspítalanum í Fossvogi. Að sögn lögreglu eru litlar vísbendingar sem hægt er að fara eftir. Þá leikur grunur á að eitthvað hafi verið sett út í drykk tveggja annarra stúlkna. Færeyskir dagar standa yfir í Ólafsvík og talið að um 5000 manns hafi komið þar saman. Vonskuveður setti strik í reikninginn og aðstoðuðu björgunarsveitir og lögregla fólk við að taka saman búnað sinn. Fólkinu var útvegað skjól í íþróttahúsin bæjarins og þegar það var orðið fullt var skólinn opnaður. Ferðamenn hafa yfirgefið bæinn í stórum stíl. Þá eru um 300 manns samankomnir að Skógum þar sem skemmdarverk hafa verið unnin á klósettum og slíku að sögn verkefnisstjóra Landsbjargar. Á Kaldármelum eru tæplega 2000 manns en þar hafa hlutirnir að mestu gengið vel fyrir sig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×