Sport

Ferdinand ekki á förum

Rio Ferdinand hefur ekki fengið blíðar viðtökur frá stuðningsmönnum Manchester United í æfingaleikjum að undanförnu, en hann hefur ekki enn skrifað undir samning við félagið. Pini Zahavi, umboðsmaður Ferdinand, segir hann ekki ætla að hætta hjá félaginu þrátt fyrir þessar óblíðu viðtökur. "Rio mun leika með Manchester United á næstu leiktíð, það er alveg öruggt. Hann vill ólmur vera áfram hjá félaginu, auk þess að félagið hefur ekki áhuga á því að selja hann. Þó samningaviðræðurnar mættu hafa gengið betur þá er það ekkert til þess að hafa áhyggjur af. Það málið leysist vonanadi fljótlega."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×