Sport

Start áfram á toppnum

Start í Kristiansand sigraði Molde 1-0 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og heldur þriggja stiga forystu í deildinni. Skagamaðurinn, Jóhannes Harðarson var varamaður í liði Start, en kom ekki við sögu í leiknum. Hannes Sigurðsson var í liði Vikings sem vann Frederikstad 2-1 með mörkum frá Egil Ostenstad fyrir leikmanni Southamton, og Haraldur Freyr Guðmundsson var í liði Álasunds, sem tapaði fyrir Odd Grenland 2-1. Start er efst í deildinni með 33 stig eftir 15 leiki, en Vålerenga og Viking koma næst með 30 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×