Sport

Stórsigur Vals

Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu kvenna burstuðu eistneska meistaraliðið Pärnu 8-1 í lokaleiknum í undanriðli Evrópubikarkeppninnar í Finnlandi í dag, Dóra María Lárusdóttir skoraði 3 mörk í dag, Laufey Ólafsdóttir og Guðný Óðisdóttir 2 hvor og Málfríður Sigurðardóttir eitt. Valur vann alla leiki sína í riðlinum og komst í milliriðil með fullu húsi stiga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×