Innlent

Mótmæla frestun þingfundar

Forseti Alþingis hefur ákveðið að fresta þingfundi Alþingis sem vera átti á kvennafrídaginn næstkomandi mánudag. Þingkonur Samfylkingarinnar mótmæltu og telja að með þessu sé vegið að kvennafrídeginum. Þingkonur Samfylkingarinnar mótmæltu þessu enda hafi þær ætlað að ganga út úr þinginu klukkan tvö eins og markmið dagsins gerir ráð fyrir en með þessu sé sú aðgerð eyðilögð. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist alltaf hafa litið á þetta sem vinnustöðvun en ekki frí og þegar konur gangi út af sínum vinnustöðum séu þær að leggja niður vinnu en ekki sé verið að veita þeim frí. Hún hefði því kosið að þing starfaði áfram á mánudaginn og þingkonur söfnuðust saman og gengju saman fylktu liði upp á Skólavörðuholt og yrðu þannig sýnilegar sem hluti af hinni breiðu kvennahreyfingu. Tilkynning frá borgarstjóranum í Reykjavík vekur athygli í þessu sambandi en borgarstjóri kemur úr röðum Samfylkingarinnar. Þar er því beint til stjórnenda á vinnustöðum borgarinnar að bregðast jákvætt við óskum kvenna um að leggja niður vinnu í þeim tilgangi að taka þátt í aðgerðunum. Borgarstjóri hvetur konur, sem vilja taka þátt í göngunni, til að komast að samkomulagi við samstarfsmenn og stjórnendur um tilhögun. Ingibjörg Sólrún segir að aðalatriðið sé það að konur verði mjög sýnilegar og áhrif þeirra í efnahagslífinu og hagkerfinu verði mjög sýnileg þannig að öllum verði ljóst að hjól þess snúast ekki án fullrar þátttöku kvenna og þess vegna eigi konur að fá full laun til jafns við karla fyrir sín störf. Aðspurð um tilmæli borgarstjóra í þessu ljósi segist Ingibjörg ekki hafa skoðað þau og lesið. Hún hafi alltaf litið svo á að konur væru að leggja niður störf.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×