Innlent

Samþykkt að selja hitaveitu Ólafsfjarðar

Frá Ólafsfirði.
Frá Ólafsfirði.

Meirihluti bæjarstjórnar Ólafsfjarðar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að selja hitaveitu bæjarins til Norðurorku á Akureyri fyrir 535 milljónir króna. Talsverð andstaða hefur verið meðal bæjarbúa við þessum áformum, en megnið af söluandvirðinu verður notað til að greiða niður skuldir bæjarins. Þær eru vel yfir meðallagi skulda bæjarfélaga og er fjármagnskostnaður vegna þeirra orðinn mikill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×