Innlent

Bensínstyrkur ekki afnuminn

MYND/GVA

Bensínstyrkur ellilífeyrisþega og öryrkja verður ekki afnuminn. Þetta sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra í utandagskrárumræðu um fjölgun öryrkja hér á landi á Alþingi í dag. Alls nær styrkurinn til 4000 ellilífeyrisþega og 2650 öryrkja. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, var upphafsmaður umræðunnar, og bæði hann og Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, fögnuðu yfirlýsingu Jóns á Alþingi áðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×