Innlent

Prófkjör Samfylkingarinnar gengur vel

Prófkjör Samfylkingarinnar í Hafnarfirði gengur vel. Klukkan tvö höfðu um 300 manns kosið, en rúmlega 2.000 eru á kjörskrá. Klukkan sex verður kjörstað lokað og fyrirhugað er að tilkynna úrslit á Fjörukránni í Hafnarfirði klukkan ellefu í kvöld. Á Akureyri voru rúmlega tvö hundruð manns búnir að kjósa um þrjú leitið. Alls eru 843 manns á kjörskrá og búist er við að þrjú til fjögur hundruð manns muni kjósa í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri. 12 frambjóðendur berjast þar um fyrstu fjögur sætin í bindandi kosningu. Úrslit verða kynnt á Akureyri klukkan níu í kvöld.

 


 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×