Innlent

Samgönguráðherra í opinberri heimsókn í Kína

MYND/Teitur

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Hallgerður Gunnarsdóttir eiginkona hans eru stödd í opinberri heimsókn í Kína ásamt fylgdarliði.Tilefni heimsóknarinnar er boð kínverskra ferðamálayfirvalda. Í ferðinni mun ráðherra hitta Hr. Shao Qiwei, stjórnarformann kínverskaferðamálaráðsins og munu þeir meðal annars ræða sérfræðingaskipti á millilandanna á sviði ferðamála. Þá mun ráðherra heimsækja stærstuferðakaupstefnu í Asíu, sem haldin er í Kunming.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×