Innlent

Funda um mögulega framleiðslu bóluefnis gegn fuglaflensu

Jón Kristjánsson
Jón Kristjánsson MYND/Pjetur

Ráðherrar heilbrigðismála á Norðurlöndunum funda á morgun um mögulega framleiðslu landanna á bóluefni gegn fuglaflensu. Fundað verður í Kaupmannahöfn og situr Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, fundinn.

Á fundinum verður rædd skýrsla sem gerð hefur verið um möguleika á sameiginlegri framleiðslu Norðurlandanna á bóluefni gegn fuglaflensu. Ráðherrarnir munu á fundinum móta afstöðu til þeirra tillagna sem liggja fyrir í skýrslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×