Innlent

Óvíst hvenær tollar lækka

Geir Haarde sótti fund Alþjóða viðskiptastofnunarinnar í Hong Kong en kom heim í
Geir Haarde sótti fund Alþjóða viðskiptastofnunarinnar í Hong Kong en kom heim í

Utanríkisráðherra kveðst ekki reiðubúinn að segja hvenær tollar á landbúnaðarafurðir verða lækkaðir eða felldir niður, eins og hann talaði um á viðskiptaþingi í Hong Kong. Hann segir að það verði ekki gert nema í samráði við önnur ríki heims og tryggt sé að stoðunum verði ekki kippt undan íslenskum landbúnaði.

Samkomulag náðist á fundi Alþjóða viðskiptastofnunarinnar í Hong Kong í dag um að fella niður útflutningsstyrki bænda í ríkustu löndum heims fyrir árslok 2013 og tolla á landbúnaðarafurðir fimmtíu fátækustu ríkja heims. Þó hvorugt hafi veruleg áhrif á Íslandi segist Geir Haarde utanríkisráðherra ánægður með samkomulagið þar sem það þýði að viðræðurnar fóru ekki út um þúfur eins og menn óttuðust. Þess í stað verði hægt að vinna áfram að auknu frjálsræði í verslun með landbúnaðarafurðir.

Geir treystir sér þó ekki til að segja til um hvenær íslenskir neytendur mega vænta þess að tollar á innfluttar landbúnaðarafurðir lækki - eins og hann boðaði á viðskiptaþinginu - með ákveðnum fyrirvörum.

"Innlendir framleiðendur verða að búa sig undir breytta tíma og aðlaga sig breyttum aðstæðum. Þetta kemur fyrr eða síðar," segir Geir. Hann segir að þetta verði þó gert í samhengi við aðrar þjóðir sem séu að gera breytingar á viðskiptaháttum sínum með landbúnaðarafurðir. "En svo eru líka til viðbótar í þessu fyrir okkur hagsmunir hvað varðar útflutning á iðnaðarvörum til landa sem við erum ekki með fríverslunarsamninga við."

Andstæðingar frjálsrar verslunar mótmæltu kröftuglega meðan á fundi Alþjóða viðskiptastofnunarinnar stóð og í gær sauð upp úr með átökum lögreglu og mótmælenda. Geir og aðrir íslenskir sendinefndarmenn urðu varir við þetta. Geir segir að framan af hafi mótmælin virst fara ágætlega fram. "Svo fór eitthvað úr böndunum eftir að ég var farinn," segir Geir sem lagði af stað heim áður en átök brutust út í Hong Kong í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×