Rússar ógna samstöðu stórveldanna 23. júlí 2006 07:45 Ali Larijani Fulltrúi Írans í kjarnorkuviðræðunum varaði við því á laugardag að stórveldin þrýstu of hart á Íran um að hætta auðgun úrans.
Andstaða Rússa við orðalag í uppkasti að ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um kjarnorkumál Írans ógnar samstöðu stórveldanna sex um hvernig skuli bregðast við mótþróa Írans við að stöðva auðgun úrans. Bandaríkin, Kína, Bretland, Frakkland, Þýskaland og Rússland ákváðu hinn 12. júlí að hefja viðræður á ný um aðgerðir Sameinuðu þjóðanna, í kjölfar þess að Íranar neituðu að svara hvort þeir myndu verða við vilja stórveldanna sex og fá í staðinn ýmis vilyrði. Leiðtogar Rússlands höfðu áður sagst vera tilbúnir til að beita Íran hörku og því komu sinnaskiptin fulltrúum hinna ríkjanna fimm á óvart. Ali Larijani, sem er í forsvari fyrir Írana í kjarnorkuviðræðunum, sagði í gær að auðgun úrans tilheyrði „óafsalanlegum rétti írönsku þjóðarinnar,“ en Íranar hafa hvorki afþakkað tilboðið né sýnt merki um að það verði gert. Ráðamenn í Teheran segjast munu gefa svar 22. ágúst en Bandaríkjamenn og bandamenn hafa sagt að það sé of seint. Ósamstaða ríkjanna gæti skaðað tilraunir þeirra við að sannfæra Írana um að komast að samkomulagi um að hætta auðgun úrans. Talið er að Rússar trúi ekki að Íranar muni taka boðinu og vilji þess vegna ekki að ályktunin sé of harðorðuð og leiði til hernaðaraðgerða Sameinuðu þjóðanna ef Íranar fara ekki eftir henni. Bandaríkjamenn segja hins vegar að málamyndaályktun sem krefjist ekki stöðvunar á auðgun úrans sé merkingarlaus og þrýsta því á Rússa að skipta um skoðun.
Erlent Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins Sjá meira