Frelsið kostar 2,5 milljónir 27. ágúst 2006 08:30
Hlynur Sigurðarson, 23 ára Íslendingur sem situr í fangelsi í Brasilíu vegna kókaínsmygls, segist hafa fengið tilboð frá lögfræðingi sínum um að hann geti keypt sér frelsi fyrir tæpar 2,5 milljónir króna. „Það er víst hægt að gera allt í þessu landi með peningum," segir Hlynur. „Þetta er ekki óalgengt hér, dómarinn myndi þá skrifa undir plagg sem segði að ég hefði afplánað mína refsingu í fylkinu og ég gæti þá fengið að fara heim." Samkvæmt brasilískum lögum á að kæra fanga innan áttatíu daga frá handtöku, en Hlynur segir að sú regla sé ekki virt í landinu. „Maðurinn hérna á móti mér er búinn að sitja inni án dómtöku í fimm ár." Tilboðið mun hafa kveðið á um að Hlynur yrði færður í annað fylki á 81. degi og síðan sleppt. Lögfræðingurinn hefur einnig hótað að segja upp samningi sínum við Hlyn, því hann hafi enn ekki fengið neina greiðslu fyrir þjónustu sína. Hlynur segist enga peninga eiga, en hann sé að reyna að bjarga þessu með aðstoð vina sinna. „Fjölskyldan vill ekkert tala við mig núna og ég skil það vel. Það er ekki eins og ég sé búinn að haga mér eins og eitthvert ljúfmenni í gegnum tíðina," sagði Hlynur, en hann bar sig nokkuð vel í gærkvöldi, þrátt fyrir erfiðar aðstæður í fangelsinu.
Erlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira