Friðarsamkomulag hefur verið undirritað 6. september 2006 07:30 Pakistanskur hermaður Fylgist með landamærum Afganistans og Pakistans. MYND/AP
Fulltrúi stjórnvalda í Pakistan og einn af leiðtogum herskárra hópa í héraðinu Norður-Waziristan undirrituðu í gær friðarsamkomulag sem vonir standa til að bindi enda á ófrið í héraðinu, sem liggur vestantil í norðurhluta Pakistans, þétt við landamæri Afganistans. Pakistanskir hermenn hafa í nærri fimm ár átt í átökum í þessu héraði við herskáa hópa, eða allt frá því þúsundir pakistanskra hermanna voru sendir þangað í beinu framhaldi af innrás Bandaríkjanna, Breta og fleiri ríkja í Afganistan. Samkvæmt friðarsamkomulaginu lofar pakistanski herinn að hætta aðgerðum sínum í héraðinu. Í staðinn skuldbinda hinir herskáu hópar sig til þess að hætta árásum á pakistanska hermenn. Einnig skuldbinda þeir sig til þess að hætta því að fara yfir landamærin til Afganistans til þess að ráðast þar á bandaríska og afganska hermenn. Hinir herskáu hópar í Norður-Waziristan eru taldir mannaðir bæði heimamönnum, sem hliðhollir eru talibönum, og útlendingum sem tengjast Al Kaída. Margir telja einnig að Osama bin Laden, höfuðpaur Al Kaída, hafi verið í felum meðal stuðningsmanna sinna í Norður-Waziristan allar götur frá því hann flúði frá Afganistan. Gagnrýnendur samkomulagsins segja það eingöngu bera þess vott að pakistanska hernum hafi ekkert orðið ágengt við að brjóta á bak aftur vopnaða hópa í héraðinu.
Erlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira