Tveir af þekktustu hagfræðingum heims heiðraðir 8. september 2006 01:30 Robert Mundell. Hann er oft kallaður faðir evrunnar en fyrir kenningar sínar um hagkvæm myntsvæði hlaut hann Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1999.
Tveir af þekktustu núlifandi hagfræðingum heims fá heiðursdoktorsnafnbót frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 21. október. Annar þeirra, Robert Mundell, hefur verið kallaður faðir evrunnar en hann er talinn upphafsmaður kenningarinnar um hagkvæm myntsvæði. Hann setti einna fyrstur fram hugmyndina um sameiginlega mynt fyrir Evrópu. Reyndar hefur hann verið þeirrar skoðunar að heimurinn ætti að sameinast um sömu mynt. Fyrir þessar hugmyndir sínar hlaut hann Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1999. Hann hefur verið prófessor við Columbia-háskóla í New York í rúm þrjátíu ár. Hinn prófessorinn, Assar Lindbeck, er fæddur í Svíþjóð og var formaður Nóbelsverðlaunanefndarinnar í hagfræði um langt skeið. Lindbeck hefur verið fremstur í flokki þeirra hagfræðinga sem hafa varað Svía við efnahagslegum afleiðingum velferðarstefnu þeirra, sem hann telur ekki nógu hagkvæma. Friðrik Már Baldursson, prófessor og forseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands, kveðst að vonum ánægður með komu þessara manna. Þeir hafi báðir átt góð samskipti við deildina hér á landi og því þyki honum mikill heiður að fá þá hingað til lands.
Innlent Nóbelsverðlaun Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira