Ásakanir um spillingu drógu úr fylgi Silva 3. október 2006 06:00 Með fána Verkamannaflokksins Frá útifundi stuðningsmanna forsetans á Alvoradatorgi í höfuðborginni Brasilíu á sunnudagskvöldið. MYND/AP
Luiz Inacio Lula da Silva, hinn vinstrisinnaði forseti Brasilíu, náði ekki þeirri yfirburða kosningu nú um helgina, sem flestir höfðu reiknað með fyrirfram. Ásakanir um spillingu virðast hafa ráðið þar úrslitum. Lula hlaut 48,7 prósent atkvæða í forsetakosningunum, sem haldnar voru á sunnudaginn, og náði þar með ekki þeim ríflega fimmtíu prósentum atkvæða sem þurft hefði til þess að sigra í fyrstu umferð. Því þarf að efna til annarrar umferðar í lok mánaðarins þar sem Lula etur kappi við helsta mótframbjóðanda sinn, hægri kratann Geraldo Alckmin, fyrrverandi ríkisstjóra í Sao Paolo, sem hlaut 41,6 prósent. Lula þykir hafa staðið sig vel í efnahagsmálum. Efnahagslíf Brasilíu þykir stöðugt og töluvert hefur dregið úr fátækt. Það voru hins vegar ásakanir á hendur forsetanum um spillingu, sem rétt fyrir kosningar drógu mjög úr fylgi hans. Mótframbjóðandinn Alckmin gerði lýðum ljóst að hans helsta verkefni í forsetaembættinu, næði hann kjöri, yrði barátta gegn spillingu í stjórn landsins. Brasilía verður að hafa siðsama og heiðarlega stjórn, sagði hann við fagnandi hóp stuðningsmanna sinna að kvöldi sunnudagsins.
Erlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira