Segir af sér og fer í áfengismeðferð 5. október 2006 06:15 Mark Foley
Tekið er að hitna undir Denis Hastert, leiðtoga repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vegna gagnrýni eigin flokksmanna á hvernig hann hefur tekið á hneykslismáli þingmannsins Marks Foley. Foley, sem sagði skyndilega af sér þingmennsku í lok síðustu viku, hefur innritast á meðferðarstofnun fyrir áfengissjúklinga. Hann sætir lögreglurannsókn vegna tölvusamskipta við vikapilta á Bandaríkjaþingi. Foley hafði sent piltunum, sem eru á unglingsaldri, ýmis dónaleg skilaboð. „Ég trúi því fastlega að ég sé áfengissjúklingur og hef fallist á nauðsyn þess að gangast þegar í stað undir meðferð við áfengissýki og öðrum hegðunarvandkvæðum,“ sagði Foley í yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér á mánudag. „Ég iðrast sárt og tek á mig fulla ábyrgð á þeim skaða sem ég hef valdið,“ sagði einnig í yfirlýsingunni. Demókratar á þinginu segja að flokksfélagar Foleys hafi hugsanlega vitað af athæfinu mánuðum saman án þess að gera neitt í málinu. Þess í stað hafi Hastert, sem er þingforseti fulltrúadeildarinnar, lagt allt kapp á að halda málinu leyndu svo repúblikanar tapi ekki þingsætinu í kosningum í nóvember.
Erlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira