Innlent

Sveitarstjórinn í Vík fékk sovéska kosningu

Vík í Mýrdal
Vík í Mýrdal MYND/Vilhelm

Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Vík í Mýrdal og oddviti sjálfstæðismanna þar, fékk svonefnda sovéska kosningu í fyrsta sæti flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í lokuðu pófkjöri flokksins. Alllir fimmtíu flokksmenn og stuðningsmenn flokksins sem þátt tóku í prófkjörinu greiddu honum atkvæði sitt og þarf líklega að leita allt aftur í valdatíð Stalíns í Sovétríkjunum sálugu til að finna ámóta tæran stuðning við leiðtoga sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×