Lokað fyrir viðskipti í Eurotunnel 3. maí 2006 12:35 Lestin sem gengur á milli Bretlands og Frakklands um Ermarsundsgöngin. Mynd/AFP
Breska fjármálaeftirlitið hefur lokað fyrir viðskipti með hlutabréf í félaginu Eurotunnel í kauphöll Lundúna í Bretlandi (LSE). Eurotunnel rekur umferðargöng undir Ermarsund á milli Bretlands og Frakklands. Ástæða lokunarinnar er sú að stjórn Eurotunnel skilaði ekki uppgjöri fyrir síðasta ár áður en lokafrestur rann út. Eurotunnel greindi frá því í síðasta mánuði að útgáfa uppgjörsins myndi frestast þar sem fyrirtækið ætti í viðræðum við lánadrottna fyrirtækisins vegna 6,3 milljarða punda skuldar félagsins. Af þeim ástæðum gætu endurskoðendur ekki lokið gerð ársuppgjörsins. Talsmaður Eurotunnel sagði í gær að ársskýrsla fyrirtækisins myndi koma í fyrsta lagi út um miðjan mánuðinn. Hluthafar í Eurotunnel geta eftir sem áður höndlað með bréf í félaginu á samevrópska hlutabréfamarkaðnum Euronext í París í Frakklandi.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira