B6 vítamín gegn Parkinsons? 1. ágúst 2006 22:00
Neysla B6 vítamíns virðist minnka líkurnar á að fá Parkinsons-sjúkdóminn. Því meira B6 vítamín, því betra. Hollensk rannsókn bendir til þess að neysla B6 vítamíns minnki líkurnar á Parkinsons. Parkinsons er sjúkdómur sem stafar af því að magn boðefnisins dópamíns minnkar hratt í heilanum. Dópamín er notað til að stjórna hreyfingum líkamans. Rúmlega fimm þúsund manns tóku þátt í rannsókninni, en niðurstöður hennar voru birtar í júlíhefti tímaritsins Neurology. Þátttakendur voru karlar og konur yfir 55 ára aldri sem höfðu ekki greinst með sjúkdóminn þegar rannsóknin hófst. Fylgst var með fólkinu í 10 ár og á þeim tíma greindust 72 með Parkinsons. Niðurstöðurnar sýndu að þeir sem tóku inn mest magn af B6 vítamíni voru í helmingi minni hættu á að greinast með Parkinsons en viðmiðunarhópurinn. Líkurnar voru þeim mun minni eftir því sem fólk tók inn meira af B6 vítamíni. B6 vítamín auðveldar efnaskipti og er nauðsynlegt fyrir ónæmis- og taugakerfið. B6 vítamín er að finna bæði í kjöti og grænmeti. B6 vítamín virðist vernda heilafrumur fyrir skaða af völdum svokallaðra radikala sem valda efnahvörfum. Rannsóknir hafa sömuleiðis sýnt fram á að reykingar minnka líkurnar á Parkinsons, líklega vegna verndunaráhrifa nikótíns sem leggst utan á heilafrumur.
Erlent Fréttir Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira