Yfirvofandi hryðjuverkaárás í Bretlandi 10. ágúst 2006 08:21 Mynd/AP
Hættuástandi hefur verið lýst yfir í Bretlandi vegna njósna um að hryðjuverkaárás sé yfirvofandi þar í landi. Öryggisgæsla á breskum flugvöllum hefur verið hert til muna þar sem óttast er að hryðjuverkamenn ætli að sprengja flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna í loft upp. Breska lögreglan upplýsti í morgun að tekist hefði að koma í veg fyrir ráðabrugg hryðjuverkamanna um að sprengja í loft upp nokkrar flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Nota átti sprengjur sem koma átti fyrir í handfarangri sem tekinn yrði um borð í vélarnar. Breska lögreglan telur að nota hafi átt sprengiefni í fljótandi formi. Fram kemur á fréttavef BBC að breska lögreglan hafi handtekið átján menn vegna málsins en rannsókn mun hafa staðið yfir í nokkra mánuði. Bandarísk og bresk yfirvöld hafa fært viðbúnað sinn á hæsta stig og bannað handfarangur um borð í vélar sem fara frá löndunum. Bandarísk yfirvöld hafa einnig bannað farþegum að taka með sér drykkjarföng, hársprey og annað þvíumlíkt um borð í vélar. Allur handfarangur er nú bannaður um borð í vélar sem fara frá Bretlandi. Öryggisgæsla á breskum flugvöllum hefur verið hert til muna og má búast við töfum á flugi í dag og næstu daga. Stjórnendur á flugvellinum í Brussel í Belgíu hafa aflýst öllu flugi til Bretlands vegna málsins. Öryggismálasérfræðingur BBC segir líklegast að bresk og bandarísk yfirvöld hafi aukið viðbúnað ef hryðjuverkamenn hefðu skipulagt varaáætlun ef upp kæmist um ráðabrugg þeirra nú.
Erlent Fréttir Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira