Þrír bankar hækka vexti 16. ágúst 2006 14:03 Seðlabankinn.
Landsbankinn, KB banki og sparisjóðirnir hafa hækkað vexti sína í kjölfar þess að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 50 punkta í morgun. Landsbankinn og KB banki ákváðu báðir að hækka vexti á óverðtryggðum innlánum og útlánum um allt að 0,5 prósentustig en hækkun sparisjóðanna nemur 0,40 - 0,50 prósentustigum. Allar vaxtabreytingarnar taka gildi frá og með 21. ágúst næstkomandi eða á mánudag í næstu viku. Í hálffimmfréttum greiningardeildar KB banka í dag segir að hækkunin sé í takt við væntingar markaðsaðila. Þó megi greina nokkuð breyttan tón í framsögu Seðlabankans, að mati greiningardeildarinnar. Sé þetta í fyrsta skipti í langan tíma sem bankinn tali ekki um versnandi verðbólguhorfur frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi heldur líti staðan betur út nú. Þá segir deildin að minni eftirspurn samhliða styrkingu gengi krónunnar á síðustu vikum hefur dregið úr verðbólguþrýstingi í hagkerfinu. KB banki spáir því að verðbólgan ná hámarki á þriðja ársfjórðungi í kringum 9 prósent og haldast há fram á annan ársfjórðung 2007 þegar hún tekur að lækka nokkuð hratt. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er í september og býst greiningardeildin við því að bankinn muni hækka vexti á ný um 50 punkta.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Viðskipti innlent Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Viðskipti innlent Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Viðskipti innlent Hafa bæst í eigendahóp PwC Viðskipti innlent Góð kjör á afmælissýningu Toyota Samstarf Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Atvinnulíf Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Viðskipti innlent Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Viðskipti innlent Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Hafa bæst í eigendahóp PwC Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Litlar breytingar á þorski í stofnmælingu Hafró Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs hjá Faxaflóahöfnum Íbúðum í byggingu fór fækkandi á milli ára Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Sjá meira