Aukinn hagnaður á milli ára 21. ágúst 2006 14:22
Hagnaður MP Fjárfestingarbanka hf. nam 615 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 270 milljónum krónum meira en á sama tíma fyrir ári en þá nam hagnaðurinn 345 milljónum króna. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kemur fram að vaxtatekjur hafi numið 985 milljónum króna en það er 146 prósenta hækkun frá sama tímabili í fyrra. Hreinar vaxtatekjur voru hins vegar neikvæðar um 250 milljónir króna þar sem hluti erlends efnahagsreiknings var fjármagnaður í íslenskum krónum. Hreinar rekstrartekjur bankans námu 1.077 milljónum króna og hækkuðu um 89 prósent frá sama tímabili í fyrra. Gengishagnaður af annarri fjármálastarfsemi nam 725 millj. kr., samanborið við 191 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður. Útlán til viðskiptamanna í lok júní 2006 voru 4.892 milljónir króna samanborið við 2.900 millj. kr. í ársbyrjun. Heildareignir bankans í lok júní 2006 voru 24.830 milljónir króna sem er 271 milljón krónu minna en í fyrra. Í tilkynningunni segir að rekstur bankans á fyrri hluti ársins hafi verið mjög góður þrátt fyrir nokkuð erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum innanlands. Í ljósi aðstæðna á mörkuðum hafi verið ákveðið að draga saman efnahagsreikning bankans hér á landi en að auka áfram umsvif bankans erlendis. Þá segir ennfremur að umsvif bankans hafi aukist verulega erlendis á fyrri hluta árs. Bankinn sé m.a. eini íslenski aðilinn að kauphöllunum í Eystrasaltslöndunum. Góður árangur bankans í Austur Evrópu er hvatning til frekari vaxtar og verður opnað útibú í Eystrasaltslöndunum á haustmánuðum. Sé það mat stjórnar MP Fjárfestingarbanka hf. að framtíðarhorfur bankans séu góðar, ekki síst í ljósi sívaxandi tekna bankans af erlendri starfsemi, aukinna þjónustutekna og vaxandi markaðshlutdeildar á innlendum markaði.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Sjá meira