Metafgangur hjá ríkissjóði 24. ágúst 2006 13:02 Um helmingur af afgangi ríkissjóðs í fyrra er kominn vegna sölu ríkisins á Landssíma Íslands hf.
Ríkissjóður var rekinn með tæplega 113 milljarða króna afgangi á síðasta ári. Þetta er 111 milljörðum króna meiri afgangur en árið 2004. Í Vefriti fjármálaráðuneytisins segir að skýringin felist að hálfu leyti í sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Landssíma Íslands hf. en hann nam 56 milljörðum króna. Hinn helmingurinn skýrist af góðri afkoma ríkissjóðs af þeirri uppsveiflu sem verið hefur í efnahagslífinu og aðhaldi í útgjöldum. Í Vefritinu segir ennfremur að aðrar tekjur ríkissjóðs hafi hækkað um 55 milljarða krónur en á sama tíma séu útgjöld hans nær óbreytt milli ára. Að söluhagnaði Símans undanskildum var afkoma ríkissjóðs jákvæðari á síðasta ári en dæmi eru um áður, að því er fram kemur í ritinu. Þá var tæpum 50 milljörðum varið til að greiða niður erlend lán og jókst handbært fé ríkissjóðs um 27 milljarða króna. Hreinskuldastaða ríkissjóðs, þ.e. skuldir að frádregnum veittum lánum, var í árslok 60 milljarðar í stað 156 milljarða króna í ársbyrjun. Tekjur ríkissjóðs á árinu námu 421 milljarði króna. Skattar á einstaklinga, fyrirtæki og fjármagnstekjur nema 132 milljörðum, sem er 30 milljarða hækkun á milli ára. Þar munar mestu um 12 milljarða hækkun tekjuskatts lögaðila, sem tvöfaldast milli ára. Þá námu gjöld ríkissjóðs í fyrra 308 milljörðum króna, sem er 8 milljarða króna hækkun á milli ára.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira