Þjarmað að Blair 6. september 2006 20:11
Sjö þingmenn breska Verkamannaflokksins hafa sagt af sér til að mótmæla því að Tony Blair forsætisráðherra skuli ekki hafa tímasett brotthvarf sitt úr embætti. Blair segir að þeir séu svikarar. Það var breska götublaðið The Sun sem greindi frá því í morgun að Tony Blair myndi hætta sem formaður Verkamannaflokksins í lok maí á næsta ári og segja af sér forsætisráðherraembætti tæpum tveimur mánuðum síða eða tuttugasta og sjötta júlí. Þá yrði búið að velja nýjan leiðtoga flokksins og arftaka hans í Downingstræti tíu. Bresk blöð hafa fjallað um veika stöðu Blair síðustu daga og í gær var greint frá því að fjölmargir þingmenn verkamannaflokksins hefðu þrýst á að hann tímasetti margboðað brotthvarf sitt úr embætti. Fyrir kosningarnar í fyrra var almennt talið að þar væri Blair að há síðustu kosningabaráttuna sína. Síðan þá hefur þess verið beðið að Blair dagsetji brotthvarf sitt en af því hefur ekki orðið enn sem komið er. Fram til þessa hefur verið talið líklegt að Gordon Brown, fjármálaráðherra, taki við af Blair og í raun talað um að þeir hafi samið fyrir löngu um valdaskipti en það samkomulag hafi Blair síðan svikið. Nú er hins vegar búist við að Brown fái keppni frá innanríkisráðherranum John Reid, Alan Johnson menntamálaráðherra eða David Miliband umhverfisráðherra um forystuhlutverkið. Skrifstofa forsætisráðherrans hefur ekki enn vísað fréttunum af afsögn Blairs á bug. Óánægja með Blair hefur vaxið innan Verkamannaflokksins síðustu misseri, meðal annars vegna gengis flokksins í skoðanakönnunum, en Blair hefur verið forsætisráðherra í ríflega níu ár.
Erlent Fréttir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira