Kastró hressist 15. september 2006 10:30 Fídel Kastró, forseti Kúbu. MYND/AP
Fídel Kastró, forseti Kúbu, virðist óðum vera að ná fyrri styrk en hann átti í gær fund með Hugo Chavez, forseta Venesúela, á sjúkrastofu Kastrós á Havana. Fjölmargir þjóðarleiðtogar, þar á meðal Chavez, sækja nú árlega leiðtogafund sambands ríkja utan bandalaga sem haldinn er á Havana. Á myndum sem birtar voru í kúbanska sjónvarpinu í gær virtist Kastró heilsuhraustari en fyrir nokkrum vikum þegar myndir birtust af honum síðast. Forsetinn gekkst undir skurðaðgerð fyrir rúmum mánuði vegna blæðinga í meltingarvegi. Raúl, bróðir hans, hefur tók þá við völdum og heldur þeim þar til forsetinn nær fullri heilsu á ný. Kastró er áttræður. Chavez hefur hitt hann þrívegis frá því hann fór undir hnífinn. Ársfundur leiðtoga ríkja undan bandalaga hófst í Havana á mánudaginn og stendur fram á sunnudag. Er þetta í fjórtánda sinn sem sá fundur er haldinn. Stjórnvöld á Kúbu taka nú við forystunni í hópnum af ráðamönnum í Malasíu. Þetta samband ríkja var stofnað á tímum Kalda stríðsins sem svar við tveggja turna tali Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Fulltrúar 118 ríkja sækja fundinn og hefur reynst sífellt erfiðara að komast að samkomulagi þegar svo margir þjóðarleiðtogar koma saman. Leiðtogar 15 þróunarríkja sem sækja fundinn hittust til skrafs og ráðagerða í gær þar sem rætt var um réttlátari alþjóðaviðskipti og minni niðurgreiðslu í landbúnaði hjá auðugari ríkjum. Íranar tóku við forsæti í hópi ríkjanna fimmtán. Eftir fundinn lagði Chavez áherslu á að Íranar hefur rétt á að halda áfram augðun úrans svo fremi að þeir ætluðu að nýta kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. Chavez ræddi einnig framboð Venesúela til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, og sagði Bandaríkjamenn hafa gert margt til að koma í veg fyrir að það yrði lagt fram.
Erlent Fréttir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira