Rússar ræða beint við fulltrúa Norður-Kóreu 5. október 2006 18:10 Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. MYND/AP
Rússensk stjórnvöld segjast hafa verið í beinu sambandi við ráðamenn í Norður-Kóreu til að reyna að fá þá ofan af því að gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Pyongyang tilkynntu í fyrradag að slíkar tilraunir væru fyrirhugaðar. Alþjóðasamfélagið hefur varað Norðurkóreumenn við því að gera prófanir á slíkum vopnum. Stjórnvöld í Norður-Kóreu segjast hafa yfir kjarnorkuvopnum að ráða en það hefur ekki fengist staðfest. Ráðamenn þar hafa, með hléum, átt viðræður við Rússa, Bandaríkjamenn, Kínverja, Japana og Suður-kóreumenn um kjarnorkudeilu sína við vesturveldin. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði blaðamönnum í dag að ráðamenn í Moskvu hefðu áhyggjur að málinu. Hann lagði mikla áherslu á það að fulltrúar Norður-Kóreu settust aftur að samningaborðinu. Viðræður hafa ekki farið fram síðan í september í fyrra. Þá var samið um að stjórnvöld í Pyongyang legðu kjarnorkuáætlun sína á hilluna í skiptum fyrir ívilnanir vesturveldanna. Svo virðist þó sem það samkomulag hafi ekki haldið vegna deilna um framkvæmd þess. Roh Moo-hyun, forseti Suður-Kóreu, kemur til Washington í dag og má ætla að kjarnorkudeilan verði eitt helsta umræðuefnið á fundi hans með George Bush, Bandaríkjaforseta.
Erlent Fréttir Mest lesið Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Innlent Fleiri fréttir Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Sjá meira