Það vilja allir vinna okkur 16. júní 2007 05:15 Ásgeir Gunnar fagnar markinu með Frey Bjarnasyni, sem líst greinilega ekkert á að fá félaga sinn í fangið. fréttablaðið/daníel
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson starfar sem sölumaður hjá Góu-Lindu í sumar en stundar þar að auki tannlæknanám. „Það er kannski smá kaldhæðni í því að vera að selja nammi og vera svo í tannlækningum,“ sagði Ásgeir í léttum tón en hann skoraði fyrra mark FH í 2-0 sigrinum á KR. „Mér fannst þetta verðskuldaður sigur. Við vissum að þeir ætluðu að selja sig dýrt en væru líka brothættir. Við urðum svolítið værukærir eftir að við komumst yfir og seinni hálfleikur var frekar bragðdaufur. Hann var frekar þægilegur, mér fannst þeir ekki vera að gera neitt,“ sagði Ásgeir. Margir einblína á KR og stöðu þess þegar deildin er skoðuð og þá gleymist oft að hampa Íslandsmeisturunum, sem hafa spilað frábærlega. „Það tekur bara pressuna af okkur, ég held að það sé bara fínt. Það eru allir sem vilja vinna okkur. Menn koma ákveðnari til leiks gegn okkur eins og hefur verið með KR í gegnum árin,“ sagði Ásgeir. Hlutverk þessa frábæra miðjumanns vill oft gleymast. Ásgeir er máttarstólpi í FH-liðinu en hefur ekki alltaf verið í sviðsljósinu. Ásgeir er vitanlega ánægður með tímabilið hjá meisturunum fram að þessu. „Mórallinn er frábær og sjálfstraustið er líka gott eins og sést í leikjunum,“ sagði Ásgeir. Hann meiddist á hné í janúar og missti af öllu undirbúningstímabilinu. „Þetta eru álagsmeiðsli í hnénu. Ég finn alltaf fyrir þessu en læt þetta ekki hafa nein áhrif á minn leik. Þetta jafnar sig líklega ekki alveg meðan maður þjösnast á þessu,“ sagði Ásgeir Gunnar Ásgeirsson.
Íslenski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira