Ilmur Kristjáns á uppleið í fjármálageiranum Freyr Gígja Gunnarsson skrifar 27. desember 2007 08:30 Ilmur Kristjánsdóttir leikur aðalhlutverkið í nýrri þáttaröð sem mun verða sýnd á Stöð 2 næsta vetur.
Silja Hauksdóttir og Ilmur Kristjánsdóttur ásamt handritsmógúlnum Sigurjóni Kjartanssyni sitja nú sveitt við skriftir fyrir nýja gamanþáttaröð með dramatísku spennu-ívafi sem sýnd verður á Stöð 2 á næsta ári. Silja og Ilmur hafa verið hluti af Stelpunum í síðustu þáttaröð sem nú er sýnd á Stöð 2 en að sögn leikstjórans verður nýja þáttaröðin eiginlega ekkert í líkingu við þá þætti að því leyti að um er að ræða framhaldsþætti. „Nei, þættirnir fjalla um unga konu sem hyggst brjótast upp metorðastigann í fjármálageiranum með fjörugt ímyndunarafl að vopni," segir Silja þegar Fréttablaðið náði tali af henni en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur þættinum verið gefið vinnuheitið Silgja. Silja gat ekki tjáð sig um hverjir yrðu við hlið Ilmar á skjánum enda væri verið að klára öll formsatriði. Aðrar persónur og leikendur væru enn í mótun . Og það er því ljóst að verið er að bregðast við því mikla æði sem reið yfir þjóðina í kjölfar sýninga á Næturvaktinni. Þáttaröðin er vinsælasti sjónvarpsþáttur Stöðvar 2 frá upphafi og fékk tvenn Edduverðlaun. Silja segir þetta einfaldlega vera mikið gleðiefni. „Mér finnst bara frábært að þetta er það sem þjóðin vill sjá. Og áhorfendur heima í stofu eru farnir að biðja um íslenskt sjónvarpsefni í miklu meiri mæli og ekki síst gamanefni," segir leikstjórinn. Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, gat ekki sagt fyrir um hver yrðu örlög Stelpnanna nú þegar Silja og Ilmur væru horfnar til annarra verkefna á vegum Stöðvar 2. „Það hafa engar ákvarðanir verið teknar um þær," segir Pálmi sem reiknaði með því að nýi sjónvarpsþátturinn yrði á dagskrá næsta vetur. Stelpurnar hafa verið á dagskrá stöðvarinnar í fjölmörg ár og notið mikilla vinsælda en töluverðar breytingar hafa átt sér stað á upphaflegum leikhópi.
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Lífið Fleiri fréttir „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Fagnaði 35 árum í sólinni Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Sjá meira