Toney og Peter mætast í nótt 6. janúar 2007 22:01 Nígeríska Martröðin stígur á svið á Sýn í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Það verða sannkallaðir þungavigtarmenn í sviðsljósinu á Sýn í kvöld þegar sjónvarpsstöðin sýnir beint frá bardaga Andrew Toney og Samuel Peter. Toney er 38 ára refur en "nígeríska martröðin" Peters er aðeins 26 ára og er einn efnilegasti maðurinn í þungavigtinni í dag. Kapparnir mættust í fyrra og þá hafði Peter betur á umdeildan hátt. Hvorugur þessara miklu lurka var þá í sérstaklega góðu formi, en þeir hafa báðir lagt mikið harðar að sér við æfingar síðan - ekki síst Toney. Sá fékk engan annan en Tai-Bo frömuðinn Billy Banks með sér í lið til að skipuleggja æfingar og mataræði og segja hnefaleikaspekúlantar vestanhafs að það hafi greinilega skilað sér. Peter sagðist þó hafa litlar áhyggjur af því, enda verði Banks ekki með Toney inni í hringnum þegar höggin fari að dynja á honum og þá verði hann fljótur að gleyma öllum Tai-Bo brögðum sínum. Mikill hasar var í kring um þá félaga á blaðamannafundum fyrir fyrri bardagann, en þá kepptust þeir við að ausa drullu hvor yfir annan. Þeir hafa þó verið öllu rólegri að þessu sinni og ætla báðir að tala sínum máli í hringnum. Útsending Sýnar hefst klukkan tvö eftir miðnætti í kvöld.
Box Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Selfoss - Fram | Barist við botninn Keflavík - Stjarnan | Komast heimakonur á sigurbraut? Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Sjá meira