Zoellick verður forseti Alþjóðabankans Jónas Haraldsson skrifar 30. maí 2007 06:53 Zoellick sést hér tilkynna afsögn sína sem aðstoðarutanríkisráðherra þann 19. júní árið 2006 en hann fór síðan að vinna hjá Goldman Sachs. MYND/AFP
Robert Zoellick verður næsti forseti Alþjóðabankans. Bandarískir embættismenn skýrðu frá þessu í gær. Zoellick kemur í stað Paul Wolfowitz, sem sagði af sér vegna hneykslismáls. Wolfowitz var sakaður um að hafa brotið reglur bankans þegar hann aðstoðaði kærustu sína við að fá betri stöðu og hærri laun hjá bankanum. Fyrsta verkefni Zoellick, ef stjórn bankans samþykkir tilnefningu hans, verður því að auka trúverðugleika bankans, jafnt innávið sem útávið. Aðalhagfræðingur Alþjóðabankans, Francois Bourguignon, sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið að Zoellick hefði reynslu sem gæti nýst honum vel í starfi. Zoellick tók þátt í Doha viðræðunum fyrir hönd Bandaríkjanna og sú reynsla mun án efa hjálpa honum því að starfsemi Alþjóðabankans snýst fyrst og fremst um að auka tækifæri þróunarrríkja í viðskiptum og stuðla þannig að aukinni velmegun almennings í þriðja heiminum. Þá var hann um tíma aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna og fór sem slíkur í fjórar ferðir til Darfúr. Sem stendur vinnur hann sem framkvæmdastjóri hjá fjárfestingarfyrirtækinu Goldman Sachs.
Erlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira