Tugþúsundir mótmæla í Pakistan 2. júní 2007 17:18 Frá mótmælunum í dag. MYND/AFP
Tugir þúsunda söfnuðust saman til þess að sýna brottreknum hæstaréttadómara stuðning í Pakistan í dag. Mótmælin fóru fram í Abbotabad sem er 50 kílómetra frá höfuðborginni Islamabad. Dómarinn, Ifhikhar Mohammed Chaudry, var rekinn úr starfi af Pervez Musharraf, forseta landsins, fyrir að hafa gerst brotlegur í starfi. Musharraf sakar andstæðinga sína um að snúa brottrekstrinum upp í pólitískt hitamál. Chaudry var rekinn úr embætti þann 9. mars síðastliðinn og hefur síðan mótmælt því harkalega. Fjölmargir landsmenn hafa stutt hann í baráttu sinni og í dag er talið að um 50 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum. Þau hafa veikt stöðu Musharraf töluvert en talið er að hann ætli sér að reyna að framlengja dvöl sína í embætti og hafi rekið Chaudry til þess að geta breytt lögum án vandræða. Þrátt fyrir að hafa tapað stuðningi innanlands hafa Bandaríkin, hans helsti alþjóðlegi styrktaraðili, staðið með honum en þau telja hann vera lykilmann í baráttunni við hryðjuverk og talibana.
Erlent Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira