Sýknuð af morðinu á bankastjóra Guðs Óli Tynes skrifar 6. júní 2007 14:35 Roberto Calvi.
Dómstóll í Róm sýknaði í dag fjóra karlmenn og eina konu sem voru sökuð um að hafa myrt ítalska bankamanninn Roberto Calvi fyrir 25 árum. Calvi sem var kallaður bankastjóri Guðs vegna tengsla sinna við páfagarð, fannst hengdur undir Blackfriars brúnni í hjarta Lundúna árið 1982. Vasar hans voru úttroðnir af múrsteinum og peningaseðlum. Roberto Calvi var bankastjóri og eigandi Ambrosiano bankans sem var að verða gjaldþrota um þetta leyti í einu mesta svikamáli í sögu Ítalíu. Auk tengsla sinna við páfagarð var talið að Calvi hefði haft náin tengsl við mafíuna og meðal annars þvættað fyrir hana peninga. Calvi hvarf í nokkrar vikur meðan málið var í hámæli og fannst svo hengdur undir Blackfriars brúnni. Í fyrstu var það úrskurðað sjálfsmorð, en málið var tekið upp aftur. Árið 2005 voru svo gefnar út ákærur í Róm. Allir karlmennirnir tilheyra mafíunni og konan var kærasta eins þeirra.
Erlent Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Fleiri fréttir Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Sjá meira